

„Ţessi magapest var bara byrjunin, viđ ákáđum ađ fara ekki of geyst til ađ byrja međ,“ segir Andrés, yfirmađur plágudeildar Himnaríkis um heiftarlega magakveisu sem lagđist nýveriđ á starfsmenn Kaupţings.
„Viđ gerum ráđ fyrir sjö plágum á ţennan tiltekna banka – sem er svona standardinn fyrir ţađ sem viđ köllum mannkynssvik af ţessari stćrđargráđu. Í nćstu viku mun renna svínablóđ úr öllum krönum og svo munum viđ breyta öllum millistjórnendum í saltstólpa rétt fyrir jól.“
Andrés segir plágurnar síđan fara stigversnandi og áćtlar ađ enda á hressilegum engisprettufaraldri. „Ţćr verđa vonandi klárar í slaginn í febrúar, eđa um leiđ og ţćr koma úr einangrun í Hrísey.“

Íslenskur vísindamađur hefur náđ ađ einangra hiđ séríslenska tuđgen.
Er ţetta árangur ţrotlausra rannsókna á íslenskum bloggurum, álitsgjöfum, stjórnmálamönnum, hagsmunaađilum og sundlaugavörđum.
Markar uppgötvunin tímamót, en vonast er til ađ í framhaldinu verđi hćgt ađ ţróa bóluefni gegn tuđi – og jafnvel naggi, suđi og kvabbi, í fyllingu tímans.

Svo virđist sem fćreyskur ţingmađur, Jenis av Rana, hafi í örvćntingu sinni beitt fyrir sig Biblíunni svokölluđu, til ađ losna viđ ađ hitta forsćtisráđherra íslands og eiginkonu hennar í kvöldverđarbođi.
Ekki mun vera um sérstaka fordóma ađ rćđa hjá manninum. Honum ţykja íslenskir ráđamenn einfaldlega upp til hópa drepleiđinlegir – og lái honum hver sem vill.

Vilhelm Helmútson, brunnfrćđingur, hefur sett á laggirnar nýja fjölskylduhátíđ, sem hann kýs ađ kalla páskajól.
„Mér fannst vanta einhverja svona hátíđ í september – hressa ađeins upp á liđiđ. Ţannig ađ ég tók nú bara ţađ besta úr uppáhaldshátíđunum mínum, ţú veist, fullt af pökkum, seríur, svínakjöt og sjúklega mikiđ af súkkulađi – en sleppti öllu ţessu leiđinlega, krossfestingum, uppstoppuđum hćnuungum, gömlum köllum í náttfötum og barnsfćđingum.“
Vilhelm gerir ráđ fyrir ađ Páskajóladag beri upp á 3. fimmtudag í september – og annan í Páskajólum strax daginn eftir.

Laddarekstur ríkissjóđs jókst nokkuđ fyrstu tvo fjórđunga ţessa árs, ţvert á spár. Vonast hafđi veriđ til ađ fjárlagaladdinn yrđi lítill sem enginn en nú er ljóst ađ töluverđur laddi verđur á fjárlögunum.
Halli ríkissjóđs er hinsvegar mjög svipađur og undanfarin ár.

Í ljósi ţess ađ hin nýja og áđur glćsilega Landeyjahöfn er smám saman ađ fyllast af jarđvegi, sandi og drullu hefur veriđ ákveđiđ ađ breyta nafni hennar í Landeyjatorg.
Vonast er til ađ torgiđ muni eftir sem áđur nýtast ferđamönnum, en á ţví er gert ráđ fyrir lundapylsu- og gosöskusölu og auk ţess sem risavaxin stytta af Árna Johnsen ađ stinga sér til sunds mun rísa á ţví miđju – komandi kynslóđum til yndisauka og varnađar.
Óljóst er hvar ferjan seinheppna, Herjólfur, mun leggjast ađ landi í framtíđinni, en viđrćđur standa nú yfir viđ siglingamálayfirvöld í Fćreyjum um ađ beina ferđum hennar ţangađ.

Svo virđist sem gleymst hafi ađ koma fyrir hjólastólarampi í álmu sem ćtluđ er sjúklega gáfuđum eđlisfrćđingum í Himnaríki.
Ekkert ađgengi er ţví fyrir eđlisfrćđinginn og ofurkrúttiđ Stephen Hawking inn á nćsta tilverustig.
Ađ sögn talsmanns Guđs Almáttugs, skapara, tengist ţetta ekki ummćlum Hawkings um ađ ekkert pláss sé fyrir Guđ í kenningum um sköpun heimsins.

Ingi Ingason útskrifađist í gćr frá Konunglegu sćnsku internetakademíunni í Visby međ gráđu í svonefndum pókmenntum, fyrstur Íslendinga.
Kveđst Ingi lengi hafa stúderađ pók á samskiptasíđunni Facebook, og algerlega heillast af flóknum samfélagslegum áhrifum ţessa sakleysislega fyrirbrigđis.
Fjallađi lokaritgerđ Inga um „Viđbrögđ sjúklega fallegs kvenfólks viđ ítrekuđu póki frá asnalegum nördum“.

Mćgin í Efra-Breiđholti hafa gert međ sér svokallađan kyrrstöđusamning.
Í honum felst ađ sonurinn, Húbert, mun fá ákveđiđ svigrúm til ađ skipuleggja og hefja tiltekt í herbergi sínu – en ţađ hefur ekki veriđ ţrifiđ síđan fyrir fermingu hans á Hvítasunnudag áriđ 1989.
Lofar móđir hans ađ sýna stillingu og hvorki öskra á son sinn né hóta honum flengingu eđa öđrum limlestingum međan á samningstímanum stendur. Á móti lofar Húbert ađ byrja á sokkarhrúgunni og fiskabúrinu.
Vonast ţau bćđi til ađ međ samkomulaginu takist loks ađ ljúka endurskipulagningu heimilisins og ađ Húbert geti snúiđ sér ađ fullum krafti ađ ađ starfi sínu sem lögrfćđingur.

Ögmundur Jónasson gerđi athugasemd viđ klćđaburđ samráđherra síns, Össurar Skarphéđinssonar, á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Vildi Ögmundur meina ađ bolur sem Össur klćddist, merktur ensku bárujárnssveitinni Iron Maiden, vćri ósmekklegur og ögrandi.
Bćđi vćri um ađ rćđa engilsaxneskan áróđur frá Evrópusambandslandi auk ţess sem hávćr rokktónlist ýtti undir löngun í áfengi og kynti undir óćskilegum lifnađarháttum óharnađra sála.
Össur brást viđ međ ţví ađ fara úr bolnum međan á fundinum stóđ – viđ litla hrifningu annarra ráđherra.


Breiđhyltska panflautuundriđ Jose Guđbrandsson leikur öll vinsćlustu lög Jet Black Joe.
JET BLACK JOSE
Í nýjum og spennandi útsetningum eftir föđur sinn.


Fréttaţulurinn snjalli Logi Bergmann fer á kostum í stórskemmtilegri revíu.
Í FRÉTTUM ER ŢETTA HELST
Hvers vegna ađ lesa fréttirnar ţegar ţú getur sungiđ ţćr?


Loksins, loksins! Tvö heitustu bönd landsins sameina krafta sína
EGÓ OG VEĐURGUĐIRNIR
fara hamförum öll fimmtudagskvöld


Gjörningaveisla á ţorra! Missiđ ekki af gjörningi listamannsins Spóa, ţar sem hann
ríđur frjálshyggju-glyđrunni á slig!
Alla miđvikudaga á ţorranum.


Logi Bergmann leikur á klarínettu Hófíar!
MIKKI MÚSÍKDAGAR
alla vikuna


Sjáiđ hinn óviđjafnanlega Herr Doktor Bóbó ţegar hann tekur Icesavelögin og tređur ţeim
UPP Í TROMPETIĐ Á SÉR
Alla mánudaga í vetur!!!


Gleđileikurinn drepfyndni í flutningi hins sprenghlćgilega Alţings
ICESAVE
alla daga fram ađ jólum.


frábćr söngsýning ţar sem ţjóđlagasólóistinn frábćri
Keytar Islancio
leikur öll sín vinsćlustu ţjóđlög.


Náhirđ Davíđs fer á kostum í óperettunni endalausu:
Helvítiđ hann Egill!
Sjáiđ Björn og alla hina hrauna af áfergju yfir sjónvarpsmanninn gullinhćrđa.


Vegna fjölda áskorana Húnvetnska ţjóđlagapönkdúóiđ
Rassgat lýđveldisins
Öll kvöld vikunnar


Mikil og almenn ánćgja ríkir víđa um heim vegna Icesave samninganna svokölluđu, einkum í mörgum ríkjum sem áđur voru hluti af breska heimsveldinu.
„Ţetta hlýtur ađ vera fordćmisgefandi,“ segir formađur skilanefndar Nýju Faróagrafanna, sem lengi hefur deilt viđ Breta um svipađar greiđslur. Í sama streng tekur talsmađur skilanefndar gambískra ţjóđargersema og eins talsmenn skilanefndar Nýju Hong Kong – sem sjá nú loks fram á ađ ná fullnćgjandi samningum og uppgjöri viđ gömlu herraţjóđina í norđri.




Klćđskiptingar
Muniđ skiptimarkađinn í Kolaportinu.
Greiđendur afnotagjalda RÚV
ekki missa af táknmálsfréttum. Nýjar ţulur. Ný tákn.
Ríkisútvarpiđ – Sjónvarp
Til sölu
lítiđ notađ mannorđ. Nokkuđ flekkađ - ţarfnast viđgerđar og hreinsunar.
A.v.á.
Togarasjómenn athugiđ!
Dönsku blússurnar komnar. Margar stćrđir.
Vélasala Einars.