Frétt — Enter — 31. 3. 2009
Neitað um tegundaskiptiaðgerð
Sigþór hefur búið meðal gulróta í 15 ár.

Sigþór Sigvarðarson, hefur stefnt Tryggingastofnun ríkisins vegna „fordóma og skilningsleysis“ en stofnunin neitar alfarið að styrkja umfangsmikla aðgerð á Sigþóri sem fara átti fram í næsta mánuði.

Sigþór hefur frá táningsaldri haldið því fram að hann sé gulrót föst í líkama karlmanns og vill fá leiðréttingu á svokölluðu tegundarringli.

„Ég er búinn að taka inn karótínhormóna í þrjú ár og átti bara eftir að fara í sjálfa aðgerðina,“ segir Sigþór sem er bæði sár og reiður vegna afstöðu Tryggingarstofnunar. „Þetta er bara spursmál um grundvallar mannréttindi. Ég vil bara fá tækifæri til ljóstillífa eins og vinir mínir svo ég geti lifað eðlilegu lífi í beðinu mínu.“

Lítill smábíll

fæst í skiptum fyrir lítinn smábíl. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Fr?tt ? Myglar ? 24. 4. 2023
Baggalútur kynnir nýtt lykilorð
Samningurinn handsalaður

Baggalútur hefur, í samvinnu við erlenda öryggissérfærðinga, skipt út öllum lykilorðum í tölvukerfum samsteypunnar fyrir nýtt, samræmt lykilorð af öflugustu gerð. Í takt við stefnu félagsins um gagnsætt jafnrétti verður nýja lykilorðið samnýtt af öllu starfsfólki félagsins, sem m.a. mun tryggja að engin veikburða lykilorð verða lengur í umferð.

Nýja lykilorðið, 8t0c$bMp7t^HNax1, uppfyllir ýtrustu kröfur um öryggi, bæði hvað varðar lengd og fjölbreytileika stafa.

Fr?tt ? Spesi ? 21. 9. 2022
Hálfviti segist ekki hafa kallað „hálfvita“ hálfvita
Hólmgeir kveðst alvarlega vera að hugsa um að stefna „hálfvitanum“ Þórði fyrir meiðyrði.

Hólmgeir Hrafnkelsson hálfviti segir í aðsendri grein á fréttavef Baggalúts að hann hafi aldrei kallað Þórð Þrándsson hálfvita.

„Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir á mig,“ segir Hólmgeir í greininni. „Mér er sama hvað þessi hálfviti heldur fram, ég hef aldrei kallað hann hálfvita.“

„Þessi hálfviti hefur ítrekað sýnt af sér hálfvitalega háttsemi og það er bara hreinn og klár hálfvitaskapur í honum,“ segir Hólmgeir að lokum.

Fr?tt ? Enter ? 7. 7. 2022
Freista þess að fá apabólu fyrstir Þingeyinga
Hópurinn var við æfingar fyrir leiðangurinn í morgun.

Sérleg rannsóknarnefnd skipuð nokkrum hugprúðum mönnum á miðjum aldri freistar þess nú að fá hina dularfullu „apabólu“ fyrstir Þingeyinga, svo vitað sé.

Að sögn talsmanns hópsins ríkir mikil eftirvænting innan hans, en einnig nokkur kvíði, sem vonlegt er. Þeir hafi kynnt sér „bóluna“ nokkuð vel á undanförnum vikum, lesið sér til, sótt námskeið og telja sig býsna vel í stakk búna til að takast á við þennan óútreiknanlega vágest, sem hefur heillað marga að undanförnu. Gera þeir ráð fyrir að ljúka undirbúningi í kvöld og halda utan, áleiðis til Berlínar, snemma í fyrramálið.

Óskum við þeim félögum alls hins besta.

Spennandi ferðir

á slóðir Tamíltígra í Sri lanka í október. Örfá sæti laus.
Lúdóferðir

Fr?tt ? Enter ? 31. 5. 2021
Fann sameiginlegan snertiflöt
Hörður stóðst ekki mátið að snerta flötinn svolítið.

Hinn alræmdi fornleifafræðingur og mennþekkjari Hörður P. Einarz hefur uppgötvað sameiginlegan snertiflöt við ósamþykktan fornleifauppgröft við Holtagarða.

Er Hörður sannfærður um að snertiflöturinn sé býsna forn, eða jafnvel allt frá tímum verslunarveldisins Miklagarðs. Hefur hann fundið merki um káf, kám og jafnvel pot á fletinum.

Hörður vonast til að frekari rannsóknir á sameiginlega snertifletinum geti leitt í ljós ástæður þess að blómleg verslun leið undir lok á þessu svæði og hefur aldrei þrifist þar síðan.

Fr?tt ? Enter ? 22. 10. 2020
Betri en eiginlega allir
Baggalútur mun vera fyrsta framúrskarandi hljómsveit Íslandssögunnar.

Það er með feikimiklu stolti sem við tilkynnum að Baggalútur er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, annað árið í röð. Með því erum við ekki endilega að gera lítið úr þeim 98% fyrirtækja á Íslandi sem eru það EKKI, og eru þar af leiðandi í tómu rugli, rekstrarlega — en samt — við erum augljóslega betri en eiginlega allir.

Við þökkum árangurinn fyrst og fremst miklum árangri á menningar– og upplifunarsviði, en aukin áhætta sem fyrirtækið tók á köntrí– og aðventumarkaði á sínum tíma, þvert á spár sérfræðinga, hefur skilað sér í auknu eiginfjárhlutfalli og traustum rekstri. Þá var tekin umdeild ákvörðun innan stjórnar seint á síðasta áratug um að hætta alfarið rekstri kaffivélar, sem hefur skilað sér margfalt til baka.

Fr?tt ? Enter ? 17. 2. 2020
Myndmerki Baggalúts uppfært
Merki Baggalúts er margverðlaunað og er jafnan talið best heppnaða íslenska myndmerkið.

Hið fornfræga myndmerki (e. lógó) Baggalúts hefur verið uppfært. Er það gert til að mæta betur kröfum samtímans um skjámiðlun, skölun, formlegt hagræði og breytta merkjaskynjun nútíma skjáneytenda, eins og segir í fréttatilkynningu.

Merki Baggalúts var upprunalega hannað af vestgotnesku listakonunni Gertrude Zeta–Zebra og standa angar þess fyrir gildi Baggalúts; traustgefni, samhygli, þrautsýni, metnúð og frumkvæðni. Þá stendur hringurinn fyrir kvenlægni og miðdepillinn fyrir mangó. Undirstrikið er svo villa í teikniforritinu Paint.

Eftir talsverða yfirlegu og hreinteikningu þar sem öll form, litir og útlínur myndmerkisins voru tekin til gagngerrar endurskoðunar, með tilliti til fagurfræðilegrar og tæknilegrar nálgunar, var ákveðið að færa merkið upp um þrjá svokallaða „pixla“ — til reynslu.

Varúlfur

Einhleypur varúlfur, reyklaus, óskar eftir að leigja gluggalaust herbergi með aðgengi að salerni, helst í kjallara. A.v.á.

Fr?tt ? Enter ? 3. 12. 2019
Aðventulag Baggalúts 2019: Afsakið þetta smáræði
Þetta er auðvitað ekki neitt neitt.

Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.” Þar bregður ljóðmælandi sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.

Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðm. Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum.

Hér má horfa á myndband við þetta lítilræði

Og hér er samtíningurinn á Spotify

Fr?tt ? Enter ? 17. 6. 2019
Nýtt lag: Appelsínugul viðvörun!
Rétt er að vara við því sem fyrir eyru ber.

Í tilefni einmuna veðurblíðu sendir hljómsveitin Baggalútur frá sér nýtt lag, sem ber heitið Appelsínugul viðvörun.

Lagið er bæði uppblásið og háfleygt og er því tilvalin 17. júní blaðra til að sleppa í loftið á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til lukku með lýðveldið.

Lagið er áhlýðanlegt á tónsprænunni Spotify. Því má dreifa sem víðast.

Fr?tt ? Enter ? 27. 2. 2019
Endurmörkun Megasar langt á veg komin
Ný ásýnd Megasar verður afhjúpuð á næstu vikum.

Allsherjar endurmörkun og ímyndarsköpun tónlistarmannsins Megasar er nú á lokametrunum. Að sögn yfirstílista verkefnisins hefur Megas verið endurskoðaður frá grunni, hann straumlínulagaður og útlit hans fært til nútímahorfs — án þess þó að hreyfa um of við sérkennum hans og alþýðlegu yfirbragði.

Samhliða þessu hafa textar Megasar verið einfaldaðir til muna til að ná til breiðari markhóps, auk þess sem þeir hafa verið leitarvélabestaðir og þýddir yfir á bæði hollensku og finnsku til að ná til stærra markaðssvæðis.

„Breytingin er ótrúleg. Hann hefur fengið alveg nýja litapalettu, nýtt og ferskt lógó, auk þess sem söngkonan Birgitta Haukdal mun ljá honum rödd sína. Sem er spennandi nýjung.“

Þá verða ný gildi Megasar kynnt, en þau eru ÁKEFÐ, EINURÐ og RÁÐDEILD.

Fr?tt ? Enter ? 26. 2. 2019
Gamli Nói keyrði kassabíl – þú trúir aldrei hvað gerðist næst!
Nói kann ekki heldur að poppa popp.

Karlmaður á besta aldri, Nói Albínusarson, tók kassabíl bróðursonar síns traustataki snemma í morgun og ók af stað í honum, án þess að biðja um leyfi.

Því miður kunni Nói ekki á stjórntæki bílsins og mölbraut því sérsmíðaðan gírkassa bílsins, sem hafði einmitt unnið Ofvitann, nýsköpunarverðlaun ofurgáfaðra leikskólabarna.

Nói komst við illan leik úr bílnum, sem gereyðilagðist. Hann var þó hinn hressasti og vildi ólmur sýna blaðamanni hvernig hann sýður egg.

ÞÚ TRÚIR ALDREI HVAÐ GERÐIST NÆST!



§ ÚR SAFNI BAGGALÚTS:
ÚR SAFNI — 14. 3. 2010 — Enter

Icesave kaffibollinn, sem fylgt hefur um 194.000 fréttum, umfjöllunum og fréttaskýringum af Icesave málinu er hataðasta fyrirbrigði Íslandssögunnar, samkvæmt nýrri …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 7. 11. 2008 — Enter

Selatalningarmenn gengu snemma í morgun fram á allstórt farandbingó í eynni Vigur í Ísafjarðardjúpi. Bingóið, sem að öllum líkindum er ungverskt, …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 22. 11. 2005 — Enter

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu, sé ekki bær um að taka yfir dómsmeðferð …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
LESBÓK — Enter — Sálmur
 
ÚR SAFNI — 8. 9. 2005 — Enter

Leit Skjás eins að piparsveini fyrir íslenska útgáfu Bachelor þáttanna vinsælu er lokið. Fyrir valinu varð Guðmar E.Finsson Jónsson, bókasafnsvörður og …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 18. 10. 2009 — Enter

„Ég bara elska allt í sambandi við Icesave,“ segir Lovísa Lillehammer, ekkja, en hún hefur tekið algeru ástfóstri við Icesavemálið …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 3. 9. 2010 — Enter

Óvenju lítið hefur gerst í svonefndum útlöndum frá efnahagshruninu á Íslandi, ef marka má fréttir og fréttaflutning. Svo lítið raunar að …

»MEIRA

LESBÓK — Númi Fannsker — Dagbók
 
LESBÓK — Enter — Sálmur
 
ÚR SAFNI — 24. 5. 2008 — Enter

Á sérlegum neyðarfundi norðurlandaráðs nú fyrir stundu, í samvinnu við ríkisstjórnir Danmerkur, Noregs, Finnlands, Íslands og Svíþjóðar var ákveðið að …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 21. 5. 2002 — Myglar

Björn Bjarnason, frambjóðandi hefur lagt fram endanlega lausn á flugvallarvandamálinu svokallaða. Komist hann til valda í Reykjavík hyggst hann láta …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 16. 3. 2006 — Enter

Svo virðist sem Ragnar Rúnarsson, bókbindari, hafi fengið sér rækilega neðan í því í gærkvöldi. Málsatvik eru enn nokkuð á huldu, …

»MEIRA