Frétt — Númi Fannsker — 4. 1. 2005
Ný meðferðarúrræði fyrir handrukkara
Sjúklingarnir þurfa m.a. að "vera A við bola".

Félagsmálaráðuneytið hefur í samstarfi við Rauða krossinn og SÁÁ komið á fót meðferðarstöð í Hrísey fyrir handrukkara.

Meðferðin fer þannig fram að handrukkurum er komið fyrir innan girðingar með nautum af Galloway-kyni og þeim gert að lifa meðal þeirra sem hluti af hjörðinni.

Sjúklingum er meðal annars gert að vingast við nautin, sem oft geta verið býsna skapstygg, með öllum tiltækum ráðum, en slíkt endar oft í blóðugum slagsmálum, þar sem nautin hafa jafnan sigur - enda naut af Galloway-kyni afar kvik í hreyfingum og liðug. Hingaðtil hefur aðeins einn rukkari útskrifast úr meðferðinni - en hann dvelur á gjörgæsludeild Lanspítalans í Fossvogi.

Tek að mér að skemmta í barnaafmælum, grillveislum og erfisdrykkjum. Hef meðferðis eigin kareókí græjur af fullkominni gerð. Sanngjörn þóknun.
Megas.

Lesbók19. 7. 2018 — Enter

Ég sé að full­hátt­virtur forseti hins háa Al­þingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurð­ar­veisluna sem hann hélt á Völl­unum að við­stöddu fá­menni í gær.

„Forseti Al­þingis harmar að heim­sókn danska þing­forsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðar­höldin og leyfir sér að trúa því að það sé minni­hluta­sjónar­mið að við­­eigandi sé að sýna danska þing­­for­setanum óvirð­ingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóð­þingsins og dönsku þjóðar­innar.“ — segir forseti.

Ég mót­mæli herra forseti.

Þessi van­hugsaða og alls óvel­komna heim­sókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjöl­milljóna­partíið þitt. Heiðurs­gesturinn flótta­legi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðana­myrka skugga á hátíða­höldin og eyði­leggja þau gersam­lega.

Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa út­dönkuðu rasista­píu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þing­forseta yfir­höfuð.

Það er nefni­lega míkró­minni­hluta­sjónar­mið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauð­klædda rasista og leiða til hásætis á hátíðar­þing­fundi á sjálfu Lög­bergi. Og það að gera lítið úr gagn­rýni á þetta skipulags­slys er ekkert annað ómerki­legt yfir­klór og eftirá­mjálm.

Svo eiga menn bara að drullu­fruss­fretast til að biðjast af­sökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðli­legum við­brögðum við þessum skammar­lega undir­lægju– og druslu­gungu­hætti.

Góðar stundir.

 
Frétt — Enter — 13. 2. 2019
Jólasveinarnir fá jafnlaunavottun
Kertasníkir ásamt Fjölmiðlafælni, sem er í starfsnámi hjá fyrirtækinu.

Fyrirtæki íslensku jólasveinanna fékk í dag jafnlaunavottun, en félagið hefur á undanförnum árum tekið með skipulögðum hætti á kynbundnum launamun innan fyrirtækisins og komið á metnaðarfullri jafnréttisstefnu.

„Við erum mjög ánægðir, eða alltsvo ánægð með þetta. Það eru að vísu mestmegnis karlmenn, sem starfa hjá okkur, eða eingöngu eiginlega, sem stendur. En það breytir því ekki að þetta er mikill heiður fyrir okkur… öll,“ segir Kertasníkir Leppalúðason, framkvæmdastjóri mannauðs– og jafréttissviðs Jólasveinanna.

Hann segist jafnframt vonast til að fleiri konur (og raunar fólk af öllum mögulegum kynjum) bætist í þessa rótgrónu — og um margt íhaldssömu stétt — á næstu áratugum eða öldum. Hann tekur þó fram að öllu slík aðlögun taki tíma og þurfi auðvitað að ígrunda vel. Hann áætlar að í dag séu um 300 sveinar í starfsnámi hjá félaginu, „allt jú, mögulega karlmenn“.

Frétt — Enter — 7. 2. 2019
Fékk sér snjallkall
Kristín ásamt snjallkallinum, sem hún kallar Snata.

Kristín Framnes hefur tryggt sér fyrsta íslenska eintakið af svonefndum „snjallkalli“ af gerðinni Man–o–matic 3030b.

Er þetta þáttur í alhliða snjallvæðingu heimilisins, en Kristín hefur þegar fest kaup á snjallperum, snjalleldhúsi, snjallúri, snjallsjónvarpi, snjallbíl, snjallsímstöð, snjallþvottavél, snjallrúmi, snjalltrampólíni og snjallhamstri.

Snjallkallinn hlýðir öllum fyrirmælum fljótt og vel, heldur uppi lágmarkssamræðum og er með öllu áhugalaus um knattleiki. Hann talar lýtalausa íslensku og kann skil á öllum helstu heimilisstörfum. Þá kemur hann með sérstöku unaðsprógrammi, sem þó er enn í Beta–prófunum.

Fyrrum eiginmaður Kristínar fæst gefins, gegn því að vera sóttur.

Frétt — Númi Fannsker — 5. 2. 2019
Bára og mögulegur vitorðsmaður nást á mynd
Bára (t.v.) og meintur vitorðsmaður hennar virðast vera í afar vönduðum dulargervum á myndinni.

Svo virðist sem Bára Halldórsdóttir, hljóðmeistari, og hugsanlegur vitorðsmaður hennar hafi náðst á mynd í öryggismyndavélakerfi Klaustur bars mánudaginn 19. nóvember. Er talið að þau hafi verið að koma fyrir hlerunarbúnaði og gera svokallað „sándtest,“ sem mun vera forsenda þess að gæði hljóðupptaka séu tryggð. Þau hafi svo kvöldið eftir beitt sérþekkingu sinni og háþróaðri upptökutækni til að taka upp spjall grunlausra gesta.

Á myndinni sjást Bára og meintur vitorðsmaður hennar taka ljósmyndir til að undirbúa aðgerðir kvöldið eftir. Sérstaka athygli vekur að þau eru í afar vönduðum dulargervum.

Flóðhestur

mikið vanaður fæst gefins, eða í skiptum fyrir lítinn 'konubíl'. A.v.á.

Frétt — Enter — 4. 2. 2019
Ný yfirflugfreyja WOW
Það kom sér vel fyrir Elísabetu að eiga allnokkur freyjuklæði á lager.

Elísabet Alexandra María Georgsdóttir, fyrrum drottning, hefur verið ráðin yfirflugfreyja hjá íslenska flugfélaginu WOWi.

Elísabet, eða Beta eins og hún er jafnan kölluð, er þekkt fyrir ríka þjónustulund, brennandi áhuga á ferðalögum og yfirburða kímnigáfu og því þótti hún smellpassa í hlutverkið.

Hún hefur ekki áhyggjur af því að takast á við nýtt hlutverk, komin á tíræðisaldurinn. „Nei, veistu, það er öllum hollt að skipta um starfsvettvang öðru hverju. Annars bara staðnar maður. Sjálf var ég svona að detta í netta kulnun.“

„Ég er líka pínu stressuð útaf þessu Brexit–kjaftæði öllu og vildi bara fá mér tryggari vinnu,“ sagði Elísabet að lokum áður en hún renndi sér fótskriðu eftir endilangri vélinni.

Frétt — Enter — 1. 2. 2019
Smári til Elísabetar
Það verður virkilega spennandi að fylgjast með Smára í framtíðinni. Hver skyldi hann fara næst?

Smári Snorrfinnsson hefur flutt lögheimili sitt frá móður sinni, Magðalenu, til Elísabetar Strömm, húsfreyju.

Smári er menntaður númiðlunartæknifræðingur og er með MBA gráðu í framvirkum sammiðlunarfræðum frá konunglega miðlunarskólanum í Drammen.

Að sögn Smára hefur hann lengi dreymt um að skipta um umhverfi og hlakkar hann til að takast á við ný og spennandi verkefni á heimili Elísabetar. Þar mun hann hafa yfirumsjón með öllum þvotti ásamt matseld á þriðju– og fimmtudögum, þá mun hann taka við alhliða dagskrárstjórn á skjámiðlum heimilisins ásamt því að vinna að þróun hreyfiáætlunar fyrir fressköttinn Bartólemeus.

Að sögn Magðalenu, móður Smára, og fyrrum vinnuveitanda verður leitast við að ráða sem fyrst í stöðu hans á heimilinu, eða einfaldlega festa kaup á snjallryksugu.

Frétt — Enter — 31. 7. 2018
Sorrí með mig
Lóa Hjálmtýsdóttir myndskreytti lagið af kostgæfni.

Hljómsveitin Baggalútur hefur sent frá sér nýtt dægurlag. Lagið heitir „Sorrí með mig“ og er ákaflega skemmtilegt og jafnframt áheyrilegt.

Lagið er nú komið á „Veraldarvefinn“, „Alnetið“ og jafnvel sjálft „Lýðnetið“ og er fáanlegt hjá eftirtöldum aðilum:

Hljóðskráargáttin Spotify

Myndskráargáttin YouTube

Við höfum aukinheldur, undir merkjum aukins gagnsæis, ákveðið að dreifa laginu á nótum. Þannig getur fólk betur áttað sig á verkinu, lært textann og jafnvel raulað laglínuna fyrir munni sér — áður en það hlýðir á það í fyrsta skipti.

Nótur má nálgast hér.

Á að mótmæla?

Heykvíslar, tjara, fiður og lambhússettur í miklu úrvali. Einnig auðmannavúdúdúkkurnar vinsælu.
Mótmælaþjónusta Magga.

Frétt — Enter — 6. 2. 2018
Vilja setja borgarstjóra í stokk
Auðveldlega mætti setja alla íbúa Miklubrautar í stokk.

Samtök áhugafólks um bílríkan lífsstíl hafa krafist þess að borgarstjóri verði settur í stokk til að refsa honum fyrir aðförina að einkabílnum í borginni.

Vilja þeir koma honum og öðrum andfélagslegum samgönguglæpamönnum (holuunnendum, hjólariðlum, stæðisfælum og strætófíklum) fyrir í þartilgerðum gapastokkum á fjölförnum stað — eins og til að mynda Stjörnutorgi — þar sem næg bílastæði eru og gott aðgengi að fæði til að kasta að stokkunum.

Það eru samtökin „elskhugar einkabílsins“ sem leggja þetta til. En þeir vilja geta notið ásta með bifreiðum sínum, óáreittir og í einrúmi á götum borgarinnar. Samtökin eru með höfuðstöðvar sínar á Seltjarnarnesi.

Frétt — Enter — 1. 4. 2017
Aprílgabb Baggalúts fellur niður
Elvis hyggst í staðinn verja deginum á Háspennu við Lækjartorg.

Hið óvænta, sprenghlægilega og árvissa aprílgabb Baggalúts felllur niður í ár, en með því vill Baggalútur styðja baráttuna gegn svokölluðum falsfréttum eða „fake news“.

Af þessum sökum verður tónlistarmaðurinn góðkunni Elvis Presley EKKI ber að ofan í Bláa lóninu í dag að syngja fallegu lögin sín og gefa iPhone síma eins og undanfarin ár.

Þeim sem vilja engu að síður láta gabbast er bent á íslenskar fjármálastofnanir, kaupmenn og hin ýmsu leigufélög.

Frétt — Enter — 29. 3. 2017
Hauck og Aufhäuser voru í raun þýskur tölvurafpoppdúett
Hauck og Aufhäuser á sínum velmektarárum.

Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sannreynt að hinir dularfullu Hauck & Aufhäuser komu aldrei að kaupum Búnaðarbankans ólíkt því sem haldið hefur verið fram frá upphafi.

Hið sanna er að þeir Helmut Hauck og Dolph Aufhäuser mynda í raun þýskan tölvurafpoppdúett sem Ólafur Ólafsson, peningamaður, virðist hafa haft mikið dálæti á.

Að sögn Hauck, sem starfar nú sem barnatannlæknir í Dusseldorf, hafði Ólafur samband við þá gegnum pennavinadálk tímaritsins Bravo og vildi endilega fá þá til að spila í afmælinu sínu.

„Við kvittuðum á einhverja pappíra og æfðum upp prógramm með íslenskum dægurlögum, en heyrðum svo aldrei aftur í herr Olafsson,“ segir Hauck sem kveðst vera í litlu sambandi við sinn gamla félaga, Aufhäuser, sem starfar nú sem barþjónn á hollensku skemmtiferðaskipi.

Frétt — Enter — 28. 3. 2017
HB Grandi leikur illmennið í næstu Bondmynd
Framkvæmdastjóri SFS þykir einnig eiga góða möguleika á að landa hlutverki í myndinni.

Útgerðarfélagið geðþekka, HB Grandi, mun leika skúrkinn í næstu kvikmynd um siðblinda alkóhólistann og flagarann morðóða James Bond.

Í kvikmyndinni á Bond í höggi við dularfullan aðalsmann sem virðist sjúga blóð úr íbúum í afskekktu sjávarþorpi. Vondi greifinn er með pattaralegan bæjarstjórann í vasanum og enginn þorir að rísa gegn honum af ótta um líf sitt og fjárhagslega afkomu samfélagsins.

Bond fer að gruna kauða um græsku þegar hann uppgötvar að vodkamartíníið á þorpskránni er svívirðilega dýrt og sterlingspundið grunsamlega óhagstætt gagnvart gjaldmiðli staðarins. Auk þess sem hvergi er hægt að fá ætt sushi í bænum, þrátt fyrir fengsæl fiskimið og sæmilega háa meðalgreind íbúanna.

Vildu aðstandendur myndarinnar fá sem ógeðfelldastan leikara í hlutverkið sem nyti engrar samúðar áhorfenda. Hafði HB Grandi betur en m.a. sjálft Alienskrímslið, flenniapinn King Kong og Magnús Scheving.



§ Spiladós




§ Úr safni Baggalúts:
ÚR SAFNI — 8. 10. 2003 — Númi Fannsker

Sá dæmalausi atburður átti sér stað í morgun að ráðherraskipuð nefnd skilaði niðurstöðu. Hefur þetta ekki gerst áður svo vitað …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 9. 11. 2006 — Númi Fannsker

Þau Þorleifur og Bára, sem bæði starfa við póstdreifingu á Vestfjörðum, gerðu í morgun svokallaðan tvísköttunarsamning. Að sögn Þorleifs hefur …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 14. 3. 2003 — Númi Fannsker

Herluf Bruun, heimsmeistari í "skrafli" (e. scrabble), heldur svokallað "masterclass" í Norræna húsinu um helgina. Á námskeiðið verður boðið efnilegustu …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Sálmur
 
LESBÓK — Myglar — Sálmur
 
ÚR SAFNI — 16. 9. 2005 — Enter

Britney Spears er orðin móðir. Henni og Kevin Federline, eiginmanni hennar, fæddist heilbrigður sonur og heilsast móður og barni vel. Baggalútur …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 10. 9. 2008 — Númi Fannsker

Mikill viðbúnaður er nú við ósa Þjórsár vegna björgunaraðgerða sem þar standa yfir. Að sögn lögreglu eru þrír bankastjórar í …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 14. 3. 2002 — Enter

Íslenskur ferðamaður í Ástralíu, Bragi Njálsson, fannst nýverið í óbyggðum álfunnar. Hann var illa til reika þegar hann fannst og …

»MEIRA

LESBÓK — Dr. Herbert — Forystugrein
 
LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 24. 11. 2003 — Enter

Hinn dáði landkönnuður, þjóð- og mannfræðingur, Hörður P. Einarz telur sig loks hafa fundið ástarhreiður Skúla Thoroddsen, fyrrum bæjarfógeta á …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 30. 9. 2005 — Númi Fannsker

Jón Ásgeir Jóhannesson og Styrmir Gunnarsson áttust við í leynilegu einvígi í Höfða snemma í morgun. Blaðamaður og ljósmyndari Baggalúts …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 20. 9. 2009 — Enter

Laufapinn Davíð hefur verið ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins, en hann var áður yfir slúður- og snobbviði blaðsins. Ritstjórinn er eindreginn andstæðingur ESB …

»MEIRA