Frétt — Enter — 13. 2. 2019
Jólasveinarnir fá jafnlaunavottun
Kertasníkir ásamt Fjölmiðlafælni, sem er í starfsnámi hjá fyrirtækinu.

Fyrirtæki íslensku jólasveinanna fékk í dag jafnlaunavottun, en félagið hefur á undanförnum árum tekið með skipulögðum hætti á kynbundnum launamun innan fyrirtækisins og komið á metnaðarfullri jafnréttisstefnu.

„Við erum mjög ánægðir, eða alltsvo ánægð með þetta. Það eru að vísu mestmegnis karlmenn, sem starfa hjá okkur, eða eingöngu eiginlega, sem stendur. En það breytir því ekki að þetta er mikill heiður fyrir okkur… öll,“ segir Kertasníkir Leppalúðason, framkvæmdastjóri mannauðs– og jafréttissviðs Jólasveinanna.

Hann segist jafnframt vonast til að fleiri konur (og raunar fólk af öllum mögulegum kynjum) bætist í þessa rótgrónu — og um margt íhaldssömu stétt — á næstu áratugum eða öldum. Hann tekur þó fram að öllu slík aðlögun taki tíma og þurfi auðvitað að ígrunda vel. Hann áætlar að í dag séu um 300 sveinar í starfsnámi hjá félaginu, „allt jú, mögulega karlmenn“.

Karlhóra

óskar eftir að kynnast góðri, skilningsríkri konu. Helst reyklausri.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Frétt — Enter — 7. 2. 2019
Fékk sér snjallkall
Kristín ásamt snjallkallinum, sem hún kallar Snata.

Kristín Framnes hefur tryggt sér fyrsta íslenska eintakið af svonefndum „snjallkalli“ af gerðinni Man–o–matic 3030b.

Er þetta þáttur í alhliða snjallvæðingu heimilisins, en Kristín hefur þegar fest kaup á snjallperum, snjalleldhúsi, snjallúri, snjallsjónvarpi, snjallbíl, snjallsímstöð, snjallþvottavél, snjallrúmi, snjalltrampólíni og snjallhamstri.

Snjallkallinn hlýðir öllum fyrirmælum fljótt og vel, heldur uppi lágmarkssamræðum og er með öllu áhugalaus um knattleiki. Hann talar lýtalausa íslensku og kann skil á öllum helstu heimilisstörfum. Þá kemur hann með sérstöku unaðsprógrammi, sem þó er enn í Beta–prófunum.

Fyrrum eiginmaður Kristínar fæst gefins, gegn því að vera sóttur.

Frétt — Númi Fannsker — 5. 2. 2019
Bára og mögulegur vitorðsmaður nást á mynd
Bára (t.v.) og meintur vitorðsmaður hennar virðast vera í afar vönduðum dulargervum á myndinni.

Svo virðist sem Bára Halldórsdóttir, hljóðmeistari, og hugsanlegur vitorðsmaður hennar hafi náðst á mynd í öryggismyndavélakerfi Klaustur bars mánudaginn 19. nóvember. Er talið að þau hafi verið að koma fyrir hlerunarbúnaði og gera svokallað „sándtest,“ sem mun vera forsenda þess að gæði hljóðupptaka séu tryggð. Þau hafi svo kvöldið eftir beitt sérþekkingu sinni og háþróaðri upptökutækni til að taka upp spjall grunlausra gesta.

Á myndinni sjást Bára og meintur vitorðsmaður hennar taka ljósmyndir til að undirbúa aðgerðir kvöldið eftir. Sérstaka athygli vekur að þau eru í afar vönduðum dulargervum.

Frétt — Enter — 4. 2. 2019
Ný yfirflugfreyja WOW
Það kom sér vel fyrir Elísabetu að eiga allnokkur freyjuklæði á lager.

Elísabet Alexandra María Georgsdóttir, fyrrum drottning, hefur verið ráðin yfirflugfreyja hjá íslenska flugfélaginu WOWi.

Elísabet, eða Beta eins og hún er jafnan kölluð, er þekkt fyrir ríka þjónustulund, brennandi áhuga á ferðalögum og yfirburða kímnigáfu og því þótti hún smellpassa í hlutverkið.

Hún hefur ekki áhyggjur af því að takast á við nýtt hlutverk, komin á tíræðisaldurinn. „Nei, veistu, það er öllum hollt að skipta um starfsvettvang öðru hverju. Annars bara staðnar maður. Sjálf var ég svona að detta í netta kulnun.“

„Ég er líka pínu stressuð útaf þessu Brexit–kjaftæði öllu og vildi bara fá mér tryggari vinnu,“ sagði Elísabet að lokum áður en hún renndi sér fótskriðu eftir endilangri vélinni.

Tölvupóstur!

Á fyrirliggjandi tölvupóst frá Jónínu, Styrmi, Megasi, Ingólfi Guðbrands, Helga P. og Hófí. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Dúbbi.

Frétt — Enter — 1. 2. 2019
Smári til Elísabetar
Það verður virkilega spennandi að fylgjast með Smára í framtíðinni. Hver skyldi hann fara næst?

Smári Snorrfinnsson hefur flutt lögheimili sitt frá móður sinni, Magðalenu, til Elísabetar Strömm, húsfreyju.

Smári er menntaður númiðlunartæknifræðingur og er með MBA gráðu í framvirkum sammiðlunarfræðum frá konunglega miðlunarskólanum í Drammen.

Að sögn Smára hefur hann lengi dreymt um að skipta um umhverfi og hlakkar hann til að takast á við ný og spennandi verkefni á heimili Elísabetar. Þar mun hann hafa yfirumsjón með öllum þvotti ásamt matseld á þriðju– og fimmtudögum, þá mun hann taka við alhliða dagskrárstjórn á skjámiðlum heimilisins ásamt því að vinna að þróun hreyfiáætlunar fyrir fressköttinn Bartólemeus.

Að sögn Magðalenu, móður Smára, og fyrrum vinnuveitanda verður leitast við að ráða sem fyrst í stöðu hans á heimilinu, eða einfaldlega festa kaup á snjallryksugu.

Frétt — Enter — 31. 7. 2018
Sorrí með mig
Lóa Hjálmtýsdóttir myndskreytti lagið af kostgæfni.

Hljómsveitin Baggalútur hefur sent frá sér nýtt dægurlag. Lagið heitir „Sorrí með mig“ og er ákaflega skemmtilegt og jafnframt áheyrilegt.

Lagið er nú komið á „Veraldarvefinn“, „Alnetið“ og jafnvel sjálft „Lýðnetið“ og er fáanlegt hjá eftirtöldum aðilum:

Hljóðskráargáttin Spotify

Myndskráargáttin YouTube

Við höfum aukinheldur, undir merkjum aukins gagnsæis, ákveðið að dreifa laginu á nótum. Þannig getur fólk betur áttað sig á verkinu, lært textann og jafnvel raulað laglínuna fyrir munni sér — áður en það hlýðir á það í fyrsta skipti.

Nótur má nálgast hér.

Frétt — Enter — 6. 2. 2018
Vilja setja borgarstjóra í stokk
Auðveldlega mætti setja alla íbúa Miklubrautar í stokk.

Samtök áhugafólks um bílríkan lífsstíl hafa krafist þess að borgarstjóri verði settur í stokk til að refsa honum fyrir aðförina að einkabílnum í borginni.

Vilja þeir koma honum og öðrum andfélagslegum samgönguglæpamönnum (holuunnendum, hjólariðlum, stæðisfælum og strætófíklum) fyrir í þartilgerðum gapastokkum á fjölförnum stað — eins og til að mynda Stjörnutorgi — þar sem næg bílastæði eru og gott aðgengi að fæði til að kasta að stokkunum.

Það eru samtökin „elskhugar einkabílsins“ sem leggja þetta til. En þeir vilja geta notið ásta með bifreiðum sínum, óáreittir og í einrúmi á götum borgarinnar. Samtökin eru með höfuðstöðvar sínar á Seltjarnarnesi.

Viðarsúla afhjúpuð í Friðey

En þér er heldur ekki boðið þangað.

Frétt — Enter — 1. 4. 2017
Aprílgabb Baggalúts fellur niður
Elvis hyggst í staðinn verja deginum á Háspennu við Lækjartorg.

Hið óvænta, sprenghlægilega og árvissa aprílgabb Baggalúts felllur niður í ár, en með því vill Baggalútur styðja baráttuna gegn svokölluðum falsfréttum eða „fake news“.

Af þessum sökum verður tónlistarmaðurinn góðkunni Elvis Presley EKKI ber að ofan í Bláa lóninu í dag að syngja fallegu lögin sín og gefa iPhone síma eins og undanfarin ár.

Þeim sem vilja engu að síður láta gabbast er bent á íslenskar fjármálastofnanir, kaupmenn og hin ýmsu leigufélög.

Frétt — Enter — 29. 3. 2017
Hauck og Aufhäuser voru í raun þýskur tölvurafpoppdúett
Hauck og Aufhäuser á sínum velmektarárum.

Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sannreynt að hinir dularfullu Hauck & Aufhäuser komu aldrei að kaupum Búnaðarbankans ólíkt því sem haldið hefur verið fram frá upphafi.

Hið sanna er að þeir Helmut Hauck og Dolph Aufhäuser mynda í raun þýskan tölvurafpoppdúett sem Ólafur Ólafsson, peningamaður, virðist hafa haft mikið dálæti á.

Að sögn Hauck, sem starfar nú sem barnatannlæknir í Dusseldorf, hafði Ólafur samband við þá gegnum pennavinadálk tímaritsins Bravo og vildi endilega fá þá til að spila í afmælinu sínu.

„Við kvittuðum á einhverja pappíra og æfðum upp prógramm með íslenskum dægurlögum, en heyrðum svo aldrei aftur í herr Olafsson,“ segir Hauck sem kveðst vera í litlu sambandi við sinn gamla félaga, Aufhäuser, sem starfar nú sem barþjónn á hollensku skemmtiferðaskipi.

Frétt — Enter — 28. 3. 2017
HB Grandi leikur illmennið í næstu Bondmynd
Framkvæmdastjóri SFS þykir einnig eiga góða möguleika á að landa hlutverki í myndinni.

Útgerðarfélagið geðþekka, HB Grandi, mun leika skúrkinn í næstu kvikmynd um siðblinda alkóhólistann og flagarann morðóða James Bond.

Í kvikmyndinni á Bond í höggi við dularfullan aðalsmann sem virðist sjúga blóð úr íbúum í afskekktu sjávarþorpi. Vondi greifinn er með pattaralegan bæjarstjórann í vasanum og enginn þorir að rísa gegn honum af ótta um líf sitt og fjárhagslega afkomu samfélagsins.

Bond fer að gruna kauða um græsku þegar hann uppgötvar að vodkamartíníið á þorpskránni er svívirðilega dýrt og sterlingspundið grunsamlega óhagstætt gagnvart gjaldmiðli staðarins. Auk þess sem hvergi er hægt að fá ætt sushi í bænum, þrátt fyrir fengsæl fiskimið og sæmilega háa meðalgreind íbúanna.

Vildu aðstandendur myndarinnar fá sem ógeðfelldastan leikara í hlutverkið sem nyti engrar samúðar áhorfenda. Hafði HB Grandi betur en m.a. sjálft Alienskrímslið, flenniapinn King Kong og Magnús Scheving.

Frétt — Enter — 21. 3. 2017
Sagði óvart „gjörðu svo vel“ við matargest
Þjónninn hafði áður fengið áminningu fyrir að spyrja gest „hvernig smakkaðist?“

Uppi varð fótur og fit á veitingastaðnum Las Vegans í miðborginni í gærkvöldi þegar þjóni varð á að segja „gjörðu svo vel“ við einn matargestanna.

Varð sá hinn sami að vonum sármóðgaður, enda í óaðfinnanlegu líkamlegu ásigkomulagi og mátti ætla af orðum þjónsins að hann óskaði honum þess að bæta á sig óþarfa líkamsþyngd — sem næmi allt að þremur kálblöðum og einhverju torkennilegu lárperujukki í snefilmagni. Auk vatnsglass.

Var þjóninum tafarlaust vikið frá störfum og honum gert að fara í sjö mánaða þagnarbindindi auk þ.ess að sækja námskeið um líkamsvirðingu, meðhöndlun grænmetisætna og tilfinningagreind.

     1, 2, 3 ... 381, 382, 383  


§ ÚR SAFNI BAGGALÚTS:
ÚR SAFNI — 25. 1. 2005 — Númi Fannsker

"Já, ég vaknaði bara í morgun og var allur einhvernveginn ómögulegur", sagði Elvar Hilmarsson tölvunarfræðingur í samtali við Baggalút fyrr …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 27. 9. 2006 — Númi Fannsker

Hagsmunasamtök Danamella hafa sent frá sér ályktun, þar sem fram kemur „...djúp og innileg von um að hugsanleg áform um …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 29. 5. 2002 — Myglar

Einar Bæring, vagnstjóri, er búinn að sitja fyrir framan sjónvarpið sitt frá því í byrjun febrúar, til að tryggja að …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
LESBÓK — Fannar N. Fannsker — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 2. 11. 2003 — Enter

Björgólfur Guðmundsson, einn aðaleigandi íslenska lýðveldisins, sagði á landsfundi Samfylkingarinnar í dag, að sig hefði lengi grunað að Eimskipafélagið væri …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 20. 1. 2005 — Spesi

"Já, ég er mjög hrifinn af þeim," segir Geir Álfgeirsson hönnuður og matreiðslumaður. "Það líður varla sá dagur að ég …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 6. 4. 2010 — Enter

Umhverfisráðherra hefur fyrirskipað að eldgosið við Fimmvörðuháls verði stöðvað tafarlaust – enda ljóst að ekki hefur verið sótt um tilskilin leyfi …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 3. 3. 2013 — Enter

Fjöldi bálreiðra neytenda hefur haft samband og kvartað yfir sviknum páskaeggjum í umferð í matvöruverslunum. Eggin eru alveg eins og venjuleg …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 12. 12. 2003 — Spesi

Félagarnir Hlíðberg og Patrekur segjast ætla að halda sambandi sínu áfram, hvað sem tautar og raular. Þeir tilheyra hvor sínum …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 5. 11. 2004 — Kaktuz

Liðsmenn R-listans svokallaða leita nú logandi ljósi að eftirmanni Þórólfs Árnasonar borgarstjóra en hann hefur átt undir högg að sækja …

»MEIRA