Lampaskuggi er einstaklega ljósfælinn. Hann er haldinn sjaldgæfum húðsjúkdómi og þolir afar illa jafnvel hina minnstu ljósglætu. Honum er því meinilla við hverskyns ljósgjafa; lampa, kastara, vasaljós og annað þvíumlíkt - aukinheldur sem hann tryllist gersamlega sjái hann neonskilti eða vita.
Þrátt fyrir fötlun sína bíður Lampaskuggi einkar óþreyjufullur eftir því að komast til byggða. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar að komast í tæri við jólaseríur landsmanna því fátt veit hann skemmtilegra en að naga sundur rafmagnslínur - í því sambandi hefur hann kynnt sér náið ljóðsleiðarakerfi borgarinnar. Þá er hann einstaklega spenntur að heimsækja sólbaðsstofur borgarinnar og jafnvel reyna að komast í bíó ef tími vinnst til.
Um Lampaskugga var þetta kveðið:
ef einhver kveiktá perum
á kamri eða skúr
kom Lampaskuggi skjótlega
og skrúfaði þær úr
seríur og sjónvörp
úr sambandi tók
og lagðist fyrir ljósið
ef lesa átti bók
Ef svo ólíklega skyldi vilja til að einhver rækist á Lampaskugga yfir hátíðarnar er viðkomandi beðinn að hafa vara á sér - og alls ekki gefa honum start.