Moðbingur er elstur sona Grýlu og fyrri eiginmanns hennar, Bola.
Hann tók ungur upp á því að hnupla sér moði til að troða í pípu sína og reykja, en neitar því að það sé nokkurs konar fíkn.
Moðbingur kemur nú til byggða í fyrsta skipti í 69 ár, eða síðan hann fór á
uppfærslu Þjóðleikhússins á Hamlet árið 1934. Þar olli hann miklum usla
þegar hann í hléi rauk upp á svið og "bjargaði" Ófelíu frá drukknun.
Moðbingur er rómaður moðhaus og telur t.d. að einkavæða beri sólkerfið, að
strætisvagnar séu leynilegar tilraunastofur fyrir SÍS og að Elvis hafi verið
til í raun og veru í "útlöndum". Þá þykir honum merkilegt að kaþólikkar séu sífellt að tönnlast á
orðunum "moð er meri" - og þakkar það sínum eigin áhrifum.
Um Moðbing var einhverju sinni ort:
Moðbingur var moðhaus
meinlítið grey
í útihúsin álpaðist
og át bóndans hey
í súrhey var hann sólginn
og sótti stíft í það
fannst að auki fásinna
að fara í bað
Eins og nafnið gefur til kynna er Moðbingur flokksbundinn framsóknarmaður og
því er fólki bent á að gæta ítrustu varúðar rekist það á hann á förnum vegi.