Margir þekkja til jólasveinanna 13, sona Grýlu og Leppalúða, sem tröllríða íslensku samfélagi yfir jólahátíðina. Færri vita að Grýla var ekki við eina fjölina felld og átti fjölmörg börn úr fyrra hjónabandi með tröllkarlinum Bola, sem hafði ekki síðri smekk fyrir gufusoðnum óþekktarormum en eiginkonan.
Þar sem Leppalúði er drykkfelldur skíthæll sem aldrei hefur hirt um fósturbörn sín, hafa hingað til aðeins hans eigin synir fengið að fara til byggða um jólin. Börn Bola og Grýlu hafa hins vegar þurft að hírast heima undir Arinhellu og brugga jólaglögg ofan í Leppalúða, sem þyrstir einatt mjög þegar líða tekur á aðventuna.
En um þessi jól verður breyting á! Eftir langar samningaviðræður Baggalútssamsteypunnar við FÍÓ (Félag íslenskra óvætta) hefur það orðið að samkomulagi að 24 af afkvæmum Grýlu og Bola fái að heimsækja mannabyggðir um þessi jól - gegn 150 kössum af jólabjór, 80 lítrum af jólaglöggi og 20 flöskum af því sem Leppalúði kýs að kalla "jólabrennivín".
Baggalútur mun fram að jólum kynna þessi óbermi, eitt á dag og leggja með því sitt af mörkum til íslenskrar jólamenningar. |