Þjóðbók
Jónas Hallgrímsson
listaskald.blogmania.co.uk
Alveg væri ég að fíla það að fá Fischer í þjóðargrafreitinn. Við Einsi erum löngu búnir að rífast um allt sem hægt er að rífast um. Auk þess væri það ljómandi tækifæri til að rifja upp mannganginn.
Egill Skallagrímsson
Yfir liggur uggur
ærinn landi vandi
Trump er himpið tregra
tálsýn hinna frjálsu.
Loksins lausir kosið
lúðasnúðar ríkja
minnis hafa mennska
mandarínu Banda.

[Uggur liggur yfir landi hinna frjálsu. Himpið Trump, tálsýn tregra, er ærinn vandi. Loksins hafa minnislausir lúðasnúðar Bandaríkja kosið mennska mandarínu.]
 
Sigurður Breiðfjörð
Kanntu brauð að baka?
Já það Kanye.
Svo úr því verði kaka?
Já það Kanye.
Ertu alveg viss um?
Já það er ég.
Eða ertu Kardashian að gabba mig?
 
Dr. Helgi Pjeturss
Almennt finnst mér að miðlar og aðrir þeir sem náð hafa tökum á gerkosmískum tengipunktum ættu að standa saman. Ég held til að mynda að með atfylgi allra þessara 365 miðla sem engum gera gagn í dag ættum við að ná góðu og stöðugu sambandi við aðrar lífstjörnur. Á móti gætu þeir endurheimt talsvert af dýrmætum áskrifendum sem hafa yfirgefið þetta tilverustig.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Jæja, þetta er orðið gott.

Nú fer ég og skrái mig á Snapptjatt og Tinder og Twitter og allt þetta sjitt. Þið getið bara fylgt mér þar.

Þá er hægt að loka þessum kirkjum öllum og breyta þeim í hótel.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Jæja. Loksins get ég sagt það.

Pabbi, þú ert íhaldssamur, fljótfær og sjálfhverfur karlrembufauskur.

P.S. Ég er fluttur til mömmu.
 
Davíð Stefánsson
Ellegar: „Blómstrandi BDSM dagar á Akureyri: Allt á að kveljast!

Ég finn það gegnum svefninn,
að einhver laumast inn
með útbúnaðinn sinn,
og veit, að það er konan,
sem kitlar „ofninn“ minn,
sem inn með tösku fer
að tánum fjöður ber
— og iljunum á mér.
Hugar svo að hnútunum
og herðir þar og hér.

Ég veit að hún á slæður
og sleipiefnagnótt
— ég slepp víst ekki í nótt.
Hendur hennar víðförlar
hár mín reisa skjótt.
Hún fer að engu óð
er öðru hverju góð
og vinnur verk sín hljóð.
Á meðan sem ég öskrandi
öll mín bundnu ljóð.

Ég veit að þessi lafði
með lostaböndin öll
er lygilega snjöll,
og launin, sem hún fær,
eru látlaus frygðarköll.
En útundan er sá,
sem aðra lætur smá
fullnægingu fá.
Fáir njóta eldanna,
sem fyrstir kveikja þá.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Þú hefur mér fjölmarga fró sent
og fegurðinn streymir frá þér.
En þetta einasta prósent;
— ertu að fokka í mér?
 
Jónas Hallgrímsson
Tunguna má teygja að vild,
troðenni sem allra víðast.
Hún er fögur, hún er snilld
— hún er vöðvi, fyrst og síðast.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Það var mikið. Þetta er nákvæmlega það sem ég er búinn að reyna að fá pabba til að innleiða í ég veit ekki hvað langan tíma. Fyrirgefning syndanna verður svo langtum, langtum skilvirkari þegar rafræm skilríki komast í notkun. Verstur andskotin samt að ég fékk enga leiðréttingu frekar en fyrri daginn.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Tálgað hef ég innan úr mér
allt sem máli skiptir.
Einkum það sem anda lyftir.
Eftir standa eyðimerkur
yfirgefins huga.
En það verður víst að duga.
 
Jónas Hallgrímsson
Þar sem háir hælar
hálfan salinn fylla,
drósir börmum dilla
dúa leðurstólar
árla fyrir óttu
enn um miðja nóttu
mærin góða mer
mig í faðmi sér…
 
Jesús Kr. Jósepsson
Ókei. Sá næsti sem segir eitthvað hnyttið um krossfitt við mig í dag þarf að hafa ansi mikið fyrir himnaríkisvistinni.
 
     1, 2, 3 ... 45, 46, 47  
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Fokk hvat ek skal höstla í Finnmörk á sumri komanda.

Þvílík ekkisens vonbrigði. Að láta þessa kotrosknu rauðbrystinga stela sigrinum, óverðskuldað, í framleingingu - hneyksli. Það held ég að ef hann Eiður okkar hefði enn verið í röðum blástakkanna hefði hann ekki látið þessa ófrýnilegu spóaleggi komast upp með viðlíka moðreyk...

Það eru nú meiri lifandis býsnin sem hægt er að riðlast á þessum blessuðu passíusálmum mínum.

Verstur grefillinn að þetta er allt löngu komið úr höfundarrétti - annars kæmist maður á hressilegt kenderí fyrir stefgjöldin.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA