Þjóðbók
Dr. Helgi Pjeturss
nyal.extraterretory.lu
Margir hafa komið að máli við mig og spurt mig hvort jólahald sé með eðlilegum hætti á öðrum tilverustigum. Svarið er ekki einfalt. Víða eru jól ríkur þáttur í gerkosmísku samfélagsmunstri tilfinningagæddra lífsforma, annars staðar eru þau vart mælanleg. Eins og gengur.

Ég hef þó þá trú að jólaandinn sem slíkur sé alheimsfasti bundinn hinu mikla sambandi, sem allir finna fyrir á einhvern hátt, hvort heldur sem þeir eru á föstu, fjótandi eða draumkenndu formi.
Fyrsti málfræðingurinn
Egill sendi:
„Bojobbobbobb skídlíbabbababojojojojo búbabobobobobobojojojoj heyjabobobboskiddlíbobbojojojobboboboj.“

Mylsnudreifari þakkar sendinguna og tekur undir hvert orð.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Allt mitt verk er einskis nýtt
enginn mun þess njóta
sé því trautt á torrent ýtt
til þess dán að lóda.

Gleymist fljótt mitt fagra starf
fáir um það tala
ef allt mitt pauf og allt mitt garf
engir niðurhala.

Endi ég mitt ævipot
upp sér fáir kippa
ef bækur mínar blöð og krot
bísar ekki rippa.

Ef þú þjóð, vilt minnast mín
og milda dauðahretið.
Troddu mér í skráarskrín
og skelltu mér á netið.
 
Davíð Stefánsson
Á feisbúkkið mæðurnar mæta
við misvitrum ummælum bæta.
Deila og daðra
dissa hver aðra
og kommenta loks: sæta-sæta.
 
Sigurður Breiðfjörð
Ég hafði ekki grænan grun
en gleðifrétt í dag ég les.
Nonni segir: Hér varð „hrun“
— sem honum þótti ekkert spes.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Hananú! Sandalinn galtómur í glugganum í morgun. Pabbi segir að ég eigi að vera löngu vaxinn upp úr því að fá í skóinn!

Hvað er hann eiginlega að gefa í skyn?
 
Gísli á Uppsölum
Tíhíhíhí. Kombar varildi nofloss aga Arnaldur!

Ehehe ... abarno flage ebr úmúsla metsala!!!

Felomo tarasa jól tromli spúrr. Tíhíhí.
 
Einar Ben
Hippsterinn nefbleikur hímir við vegg.
Hljómsveitin fannst honum óvenju slöpp.
Skimar og gónir sem úlfur á egg
að einhverju kvenslags að taka á löpp.
Að þetta grey skyldi álpast á legg,
agndofa spyr ég mig, rök eru knöpp.
Allt sem hann hefur er húfa og skegg
– við Hörpu loks króknar með fingur við öpp.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Sandý með látum nú lendir
og limlestir sköllótta örninn.
En CNN, seg mér hvað hendir
– Jacqueline og vesalings börnin?
 
Grímur Thomsen
Berst úr dalnum fruss og fliss
– fari það í úldið piss.
Landsliðsdruslan, vertu viss
var að tapa fyrir Sviss.
 
Tómas Guðmundsson
Mikið er nú rokið í henni Reykjavík alltaf velkomið og indælt.

Annað en skítablásturinn í Kópavoginum, fimbulgarrinn í Mosó eða andfúlt fjúkið úti á Nesi.
 
Fyrsti málfræðingurinn
Hinn annars ágæti fréttaþulur, Broddi Broddason (ef það er þá hans rétta nafn), sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins-hljóðvarps (eða RÚV, eins og stjórnleysingjarnir í Efstaleiti vilja af óskiljanlegum ástæðum kalla þessa stofnun sem við, skattborgarar þessa lands, eigum) að tiltekin rækjuvinnsla væri „farin á hausinn.” Heyr á endemi! Eru nú sjávarútvegsfyrirtæki úti á landi með hausa? Eða er tiltekin rækjuvinnsla ef til vill farin á haus einhvers annars? Bauhaus kannski? (aths. mylsnudreifara: þessa skrítlu sendi Mylsnufan - hafi hann þökk fyrir)

Vitaskuld hefði áðurnefndur Broddi átt að segja þarna að tiltekin rækjuvinnsla væri „farin á rassgatið,” enda eru þau bæði mörg og víðfeðm á sjávarútvegsfyrirtækjum þessa lands. Og jafnan troðfull af peningum annarra.

Einnig legg ég til að téður Broddi hækki róm sinn um eins og tvær áttundir. Þessi strigabassalestur verður til þess að mylsnudreifari þarf að skipta um rafhlöður í heyrnartækjum sínum daglega. Heyr á endemi!

Fyrirvari: Efni þessara skrifa endurspeglar á engan hátt staðreyndir. Það endurspeglar ekki einu sinni skoðanir mylsnudreifara. Í raun endurspeglar það ekki nokkurn skapaðan hlut.
 
Dr. Helgi Pjeturss
„Til greina kemur að taka upp atriði fyrir nýja Star Trek-mynd á Íslandi í sumar“ segir í einum falsmiðlanna. Vita þessir blessuðu blaðasnápar ekki að sögusvið Star Trek er ekki bara í fjarlægum útgeimi, heldur aukinheldur í framtíðinni? Bjálfar.
 
        1, 2, 3, 4 ... 45, 46, 47  
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Ljósmóðir, ljósmóðir
leiðindaslytti,
vemmilegt, væmið
vitsmunamorð.
Fari það fjósslóðir
fúlum í pytti.
Klígjulegt, klæmið
og klunnalegt orð.

Ég orti nýtt kvæði í morgun. Ég held að ég sé að ná að fullkomna stílinn.

Mér finnst gott að maula ís,

mikið fínt og gaman.

Mamma er sko í mussu úr flís,

mikið er það gaman.


Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.

Frábært. Þá er maður endanlega hættur að fá að ríða út á að hafa fundið Ísland – meir að segja hér í Manitoba. Takk fyrir það útrásarfávitar.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA