Ţjóđbók
Jónas Hallgrímsson
listaskald.blogmania.co.uk
Ţvílík niđurlćging. Ég ađ leika jólasvein í Glćsibć. Ég! Listaskáldiđ góđa. Gaulandi gekkégyfirsjóog land og adamáttisynisjö - ţvílíkur annar eins hortittlingaskítur og leir.

Eins gott ađ ég fái nóg fyrir vćnum sjenna fyrir ţetta helvíti.
Jónas Hallgrímsson
...er nú vinur Konráđ Gíslason, Tómas Sćmundsson og 1 ađrir.
 
Jónas Hallgrímsson
Kynin eru kostum prýdd
kynhlutverk sín leika.
Í kyngervi um kynjavídd
kyngerđ bćđi reika.
 
Jónas Hallgrímsson
Ill eru örlög
útrćstrar ţjóđar
fetar nú helveg flest.
Falliđ er frćkiđ
fyrra gengi
ónýtur orđstír og sćmd.
Fúll er fnykur
fregna í lofti
ţögul er vegmóđ ţjóđ.
Dísir sem dagskrá
dýrđlegar kynntu
farnar af flötum skjám.
 
Jónas Hallgrímsson
Pínleg standa prestagreyin
í predikunarstólum.
Ekki vilja gifta geyin
en ganga ţó í kjólum.
 
Jónas Hallgrímsson
Í kjörklefanum vil ég vega
valkosti, og skegg mitt strjúka.
Ađ lokum sest ég sćmilega
sáttur oná ţá og kúka.
 
Jónas Hallgrímsson
Hćttu ađ gráta Hannes minn,
ţú heiđurssómapiltur
Ég skal vera vinur ţinn
verđi Davíđ trylltur.

Hćttu ađ gráta Hannes minn,
ţó hugsjón ţinni blćđi.
Ég skal ţerra ţína kinn
uns ţrýtur Davíđ brćđi.

Hćttu ađ gráta Hannes minn,
ţú hreini frelsiskjaftur.
Ég skal breiđa út bođskapinn
brjálist Davíđ aftur.
 
Jónas Hallgrímsson
Ógn og skelfing, hugur hrýs.
hvernig gastu, Ernest ... djís ...
skiliđ viđ ţig undir ís
eldvatnslýs í kassavís?

Hefđann blessađ viskuvatniđ ţambađ
– vímađur á pólinn hefđi rambađ.

 
Jónas Hallgrímsson
Nú Icesave er liđiđ í aldanna skaut
og aldrei ţađ kemur til baka
– nemef vort fallvalta forsetaskraut
fúlsar viđ ţessháttar andstyggđargraut
og neitar viđ nafn sitt ađ haka.
 
Jónas Hallgrímsson
Ég á afmćli í dag,
ég á afmćli í dag.
Ég á afmćli ég sjálfur,
ég á afmćli í dag.
 
Jónas Hallgrímsson
Hér hvílir
harmur ţjóđar
grafinn, gleymdur
glópum öllum.
Far í friđi
friđarspillir;
Íslands auđur
afskrifađur.
 
Jónas Hallgrímsson
Sáuđ ţiđ hana systur mína?
sú var orđin helst til full.
Kokhraust innbyrti áfengt sull;
loks fór hún glaseygđ ađ gráta og hrína.

Af henni ganga ýmsar sögur;
oft hún lyftir sér á kreik
ítrekađ fer hún í flennisleik
– sjón sem ađ seint ţykir fögur.

Nćfurţunn á nýjum degi
– međ nýćlt galliđ út á kinn –
eigrar hún uns unnustinn
finnur hana á förnum vegi.
 
Jónas Hallgrímsson
Svei mér ţá. Nú er eitthvert auglýsingaviđriniđ búiđ ađ dubba upp einhvern ţunnhćrđan smjörspikađan skeggapa í minni mynd á heilli opnu í Fréttablađinu. Til ađ auglýsa einhverjar ekkisens kaffivéla- og stofublómatryggingar! Ţessu uppstrílađa greppitrýni fylgir svo einkar ósmekklegr tilvísun í ţađ ţegar ég hrundi blekhellađur niđur tröppurnar úti í Köben forđum.

Hvađ nćst? Á ađ birta heilsíđumynd af ţví ţegar viđ Nonni Sig fengum sífilisiđ?
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Úr ţjóđbók

Allt mitt verk er einskis nýtt
enginn mun ţess njóta
sé ţví trautt á torrent ýtt
til ţess dán ađ lóda.

Gleymist fljótt mitt fagra starf
fáir um ţađ tala
ef allt mitt pauf og allt mitt garf
engir niđurhala.

Endi ég mitt ćvipot
upp sér fáir kippa
ef bćkur mínar blöđ og krot
bísar ekki rippa.

Ef ţú ţjóđ, vilt minnast mín
og milda dauđahretiđ.
Troddu mér í skráarskrín
og skelltu mér á netiđ.

Djöfuls andskotans auđvaldspungar og gróđabísar, mergsjúgandi mann í vöku sem draumi. Réttast vćri ađ taka ţessa snápa alla sem einn og blóđflengja ţá međ vćnum hrísvendi á fitubólginn bossann...

Hmm. Nú er veriđ ađ fárast yfir ţvoglumćlgi einhverrar kratalufsu í rćđustól á alţingi. Ţađ ţykir mér týra.

Má sumsé skilja ţađ sem svo ađ menn séu almennt farnir ađ mćta edrú í ţingsali?

Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA