Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Kallinn skellti sér á fundinn í Iðnói áðan. Þar var pú og kurr og fuss og svei.
Og hiti í mannskapnum. Hvussu leingi hef ég ekki beðið eftir því að hitastig Íslendínga færi upp fyrir frostmörk á honum selsíussi.
Hvílík dýrðarinnar dásemdarstund. Ég fór barasta að skjæla.
Í farveg tímans fræsti rák
Fischer, Róbert.
Hann lúnkinn var að leika skák
– en lét það ógert.