Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Þér glæfraþjóð er göslast óð
af græðgi blind, að hverri lind;
úr dýrum sjóðum dregur blóð.
Ó, döpur mynd! Ó, hvílík synd!
Ég er að semja nýtt verk í tilefni af efnahagskreppunni miklu sem nú skekur íslenskt samfélag.
Það á að heita: Hólíkrapp! í e-moll
Þórður Daníel (sem reyndar skrifar sig Danéil) skrifar á fésbókarsíðu útvarpsstöðvarinnar FM957 síðastliðinn föstudag:
Halda því eða henda því á FM957, þetta er lag kvöldsins LIKE ef þú fýlar það!
Jafnvel þó fnykinn leggi efalítið af þessum tiltekna söng þá tíðkaðist á mínu æskuheimili að fíla hljómlist, en ekki fýla. Auk þess gerir það orðskrípinu 'like' engu hærra undir höfði þó það sé skrifað með hástöfum. Mín vegna má því henda þessu öllu út í hafsauga Þórður sæll.