Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Voðalega er þetta þreytandi. Alltaf á þessum árstíma fer fólk að spyrja mig í samúðartón, hvað ég ætli að gera um páskana.
Svarið er einfalt – ég skelli mér á skíði, eins og alltaf.
Ég er massasáttur við nýju þýðinguna á bókinni hans pabba. Allt annað en þetta uppskrúfaða torf sem var í gömlu útgáfunni. Það verður engum breytt í saltstólpa fyrir þetta, því get ég lofað. Helvíti fínt bara!
Hmm. Nú er verið að fárast yfir þvoglumælgi einhverrar kratalufsu í ræðustól á alþingi. Það þykir mér týra.
Má sumsé skilja það sem svo að menn séu almennt farnir að mæta edrú í þingsali?