Þjóðbók
Jesús Kr. Jósepsson
sussi@divineentities.com
Jæja. Loksins get ég sagt það.

Pabbi, þú ert íhaldssamur, fljótfær og sjálfhverfur karlrembufauskur.

P.S. Ég er fluttur til mömmu.
Jón Sigurðsson
Fyrr munum vjer dauðir liggja en láta þá smán yfir þjóð vora ganga að hún gangist enn á ný undir ægivald hins norska konungdæmis. Að hæstvirtur ráðherra utanríkismála skuli dirfast svo mikið sem að ræða við þessa samviskulausu kúgara sem...
 
Halldór Kiljan Laxness
Hvaða erkifífli kom til hugar að gefa út úrval verka minna með einhvurri samræmingu, sem uppnefnd er nýmóðins stafsetning? Er ég einhvur fornmaður í réttritun? Ég veit ekki betur en ég hafi einmitt lagt mig fram um að rita verk mín með hámóðins stafsetningu, skiljanlegri öllum þorra manna og laungu tímabærri...
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Jæja. Þá er maður kominn heim frá Köben. Við Gudda tókum illa á því í Kristjaníu þannig að maður er soldið svona ryðgaður :) Gudda er hinsvegar í massastuði - hún skoraði nefnilega helvíti gott E í ferðinni sem hún náði að smygla til landsins í...
 
Egill Skallagrímsson
Æi krapp! Ek hjó einn í morgun. Var frekar messí. Lagði í stæði vort. Skíthæll. Ek var alveg hellaðr. Farið hefr fé betra. Ek vona bara að drullusokkrinn hafi ekki...
 
Jónas Hallgrímsson
Hólíkrapp hvað ég var ógó fullur í gær. LOL. Kallinn var helmökkaður á djamminu. og btw dyravöruðinn á Ölstofunni er fááááviti. Ég skulda ekki djakksjitt á barnum!!!
 
Einar Ben
Hvenær ætlar þessari litlu þjóð að lærast að nýta land sitt til góðra verka? Fleiri milljón tonn af vatni falla til sjávar dag hvern, algerlega ónýtt. Er það einhverjum til gagns? Allt þetta skyldi virkja, hverja sprænu, hvern poll. Áður en það verður um seinan...
 
Jóhannes S. Kjarval
Það er allt annað líf að mála uppi á Þingvöllum, eftir að ég fékk mér iPodinn. Hlustaði á Duran Duran á blastinu meðan ég málaði fullt, fullt af hrauni og tvær rjúpur...
 
Jónas frá Hriflu
Eruð þið ekki að fokkings djóka í mér?! Framsókn rétt að slefa í 10% fylgi. Glatað. Ef ég væri ekki of upptekinn við að snúa mér í gröfinni myndi ég koma og taka þessa lúðulaka upp á eyrunum og...
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Helvítis andskotans djöfulsins grábölvað skrambans matvælaverðið hefur ekki lækkað nokkurn skapaðan djöfulsins hlut. Réttast væri að taka þetta bévítans andskotans blóðsjúgandi skítapakk allt og troða því ofan í næstu...
 
        1, 2, 3 ... 45, 46, 47
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Ýmsir félagar og vinir úr útgeimi hafa haft samband við mig vegna yfirvofandi heimsendis, sem þeir hafa lesið um á Alnetinu.

Ég hef róað þá og sagt að í mesta lagi verði um mjög lítinn, staðbundinn heimsendi að ræða. Helst að astrófísísk spegilsamfélög Sviss á öðrum tilveru- og reyndarstigum þurfi að hafa áhyggjur.

Jæja, ég verð víst að játa mig sigraðan. Við ráðum ekkert við þetta blessaða sjálfstæði. Endar bara með tómu veseni.

Sorrí.

Mylsnufan sendi mylsnudreifara eftirfarandi símbréf:

„Á útvarpsstöð Latabæjar, eða „útvarpi Ambögubæ,“ eins og ég kýs að kalla það, heyrði ég nokkuð snoturt lag á dögunum. Lagið fjallaði um lítinn Mexíkóa með mexíkóahatt sem bjó einn í litlum bjálkakofa. Það var hinsvegar amböguskjóðunni Kötlu Maríu ofviða að fara með málfræðilega réttan texta í laginu. Hún söng: „Lítill Mexíkani með Sommsommbreró!“ Ítrekað. Klifaði bókstaflega á þessum ambögum; Mexíkani og Sommsommbreró! Ég spyr: Hvar og hvað er þetta Mexíkan? Er það ef til vill nálægt Mexíkó? Og hvaða orðskrípi er þetta Sommsommbreró? Er þetta ef til vill danska; Mexico og Sombrero? Uss! segir Mylsnufan.“

Já - það gerir mylsnudreifari líka.

Ási í Bæ orti um „ekta mexíkanahatt.“ Mylsnudreifari spyr: Er þarna kominn sommsommbreróinn sem Katla María syngur um? Og hvað er þetta „Bæ?“ „Ási í Bless,“ á þetta auðvitað að vera! Auk þess legg ég til að skipt verði alveg um stjórn í Efstaleiti. Og hvar er málfarsráðunauturinn? Er hann að sóla sig í „Mexíkan?“

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA