Þjóðbók
Jónas Hallgrímsson
listaskald.blogmania.co.uk
fjær ertu fornri
frægð þinni
dallur dóps og sælu
pólsins stjarna
starir niðurlægð
yfir Fáskrúðsfjörð

smygli öngvu eirir
armur laga
upprætir amfetamín
en lyfseðla ljúfa
fær lögregla
aldrei upp tekið
Jónas Hallgrímsson
Um þrengsli siglir þjóðarfley.
Þyrsti mig í sopa;
í klukkubúðum kaupi ei
kardemommudropa.
 
Jónas Hallgrímsson
Það var sagt mér að íslenskan væri eitthvað að slappast. Gæðin væru einfaldlega ekki eins góð og í gamla daga.

Ég er ekki að fíla það.
 
Jónas Hallgrímsson
Hvað er svo glatt sem knattar kappar fráir,
er kætin skín á vonarhýrri brá?
Eins og á HM, leikjum skrýðast skjáir,
skýrist og glæðist hugarkætin þá.
Og meðan ei er glötuð heimsins glóra
og glæstar spyrnur lýðum veita spark,
þá er það víst, að blómin traustust tóra
í takkaskóm, sem geta skorað mark.
 
Jónas Hallgrímsson
Jæja, þá veit ég hversu mörg essemmess þarf til að færa Íslandi 12 stig.

Það sem ég veit hins vegar ekki er hversu brjálaður Konráð verður þegar hann fær símreikninginn sinn.
 
Jónas Hallgrímsson
Ljót ertu lóa
lúsa og flóa
bæli - og bannsett pest.
Ljót ertá litinn
lítil og skitin
fúl eru egg þín flest.

Ljót ertí lyndi
lymskunnar yndi
blautt í þér hjarta berst.
Ljót eru ljóð þín
leið eru hljóð þín
- en söngröddin sýnu verst.
 
Jónas Hallgrímsson
Tvennt í stöðunni.
Ódauðleg sonnettuskrif og rósavínsflaska
EÐA
alger hellun í bænum og sirka 20% séns á sleik.

... Nema auðvitað ég taki bara flöskuna með.
 
Jónas Hallgrímsson
Snemma burt úr bænum skreið
búinn eftir þeysireið
kvaddi kráarsælu
loppinn hálstau leysti frá
listaskáldið kreisti þá
upp úr hálsi ælu
 
Jónas Hallgrímsson
feta fjármál
fjandans stigu
velkjast um vegu heljar
öll er upphefð
aldar nýrrar
kaldri fortíð falin

lepja dauða
drambsins þrælar
brátt úr bleikri skel
fallin er króna
fallin æra
Íslands óskabarna

 
Jónas Hallgrímsson
Alveg væri ég að fíla það að fá Fischer í þjóðargrafreitinn. Við Einsi erum löngu búnir að rífast um allt sem hægt er að rífast um. Auk þess væri það ljómandi tækifæri til að rifja upp mannganginn.
 
Jónas Hallgrímsson
Elsku besta Bíónsí
með botn þinn öðrum fegri;
skyldi eg séns þig eiga í
- ef ég væri negri?
 
Jónas Hallgrímsson
Las það einhvers staðar að það þyrfti að tæma ca. 400 stykki af litlu súkkulaðiflöskunum í nóakonfektkössunum til að finna almennilega á sér.

Það stemmir.
 
Jónas Hallgrímsson
Þvílík niðurlæging. Ég að leika jólasvein í Glæsibæ. Ég! Listaskáldið góða. Gaulandi gekkégyfirsjóog land og adamáttisynisjö - þvílíkur annar eins hortittlingaskítur og leir.

Eins gott að ég fái nóg fyrir vænum sjenna fyrir þetta helvíti.
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7  
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Hvernig er það, eru menn almennt að halda upp á 2010 ára afmæli? Og erum við þá að tala um brauðtertufrenzý, pulsufest, eða kokkteilsplæs?

Ommnommnommnomm. Ommínommnommnomm. Njommsnjomms. Gommonomminommnomm. Njammsnjamms? Ohohoho hohoho! HAH! Njommimjomm. Ommnommnomm. Tíhíhí.

Heimskir eru herrar þjóða
hefta styrk þess góða.
Fátt þeir vita, veröld bjóða
vegferð myrkra slóða.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA