Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Naujnauj. Fimmhundruðkallinn bara að verða tvíalda í ár. Imba, ef þú lest þetta, þá er óskalistinn svohljóðandi:
1) iPad 2.
2) Þrívíddarsjónvarp.
3) Konungssamband við Danmörku.
Helvítis andskotans djöfulsins grábölvað skrambans matvælaverðið hefur ekki lækkað nokkurn skapaðan djöfulsins hlut. Réttast væri að taka þetta bévítans andskotans blóðsjúgandi skítapakk allt og troða því ofan í næstu...
Fann eftirfarandi vísu aftan á gamalli servíettu á heimili mínu:
Atti katti nóa
atti katti nóa
emissa demissa
dollamissadei
Skriftin er afskaplega barnaleg og undir er krassað „Dóri“. Ég verð nú að segja að þetta er með því alslappasta sem ritræpillinn frá Laxnesi hefur ort.