Jæja, heimturnar skítsæmó þetta árið. Baðsloppur og bestipabbiíheimi-atgeir frá Órækju. Og svo fjórtán eintök af Heimskringlu og tvö af Eddu.
Það verður tilfinnanlega að fara að gefa út fleiri bækur á þessu skeri.
Jáhérnabarastahér. „Björt framtíð?“ Er þetta virkilega það besta sem flokkaflakkaranum og bestuskinnunum datt í hug? Hvað með „Blóm og kanínur“, „Ástarpungarnir“ eða „Englatásur“? – Hvílík kvoða og vemmivelgja.
Helvíti rennur framsóknarblóðið hægt í æðum erfðaprinsins.
Ég hef tekið ákvörðun. Ég ætla að bjóðast til að mála alla innlenda dagskrárgerð RÚV. Reyna að fríska aðeins upp á hana.