Nú eru allir stjörnu þetta og stjörnu hitt. Stjörnulögfræðingar, stjörnukokkar, stjörnublaðamenn o.þ.f.e.g. Ég tilkynni því hér með að ég hefi ákveðið að gerast stjörnustjörnufræðingur.
Öll af hinu illa
eining borgar reynist.
Styrkt með stráum virki;
staulast þar um aular.
Feilar fáum dyljast,
fylgis dræm er bylgja.
Ból hins beygða Óla
bælir enginn lengur.