Ţjóđbók
Handbolti ég hata ţitt
hređjatak á ţjóđarpungnum.
Farđu beint í fúlan pytt
ađ fokkings ţjóđsöngvunum sungnum.
Jónas frá Hriflu
WHOOP! WHOOP!
 
Steinn Steinarr
Gaf brabra;

ekkert eftir.
 
Dr. Helgi Pjeturss
Ég hefi af ţví ţungar áhyggjur ađ amerískir kvikmyndadólgar sýna landiđ okkar ć oftar sem svokallađan „tökustađ“. Sérstaklega í tengslum viđ kvikmyndir sem ćtlađ er ađ höfđa til vera af öđrum lífsstjörnum.

Ég tel ađeins tímaspursmál ţar til gerkosmískar verur, t.d. geimverur fara ađ taka fólk, ófrjálsri hendi og án ţess samţykkis, af ţessum stöđum.
 
Fyrsti málfrćđingurinn
Egill sendi:
„Bojobbobbobb skídlíbabbababojojojojo búbabobobobobobojojojoj heyjabobobboskiddlíbobbojojojobboboboj.“

Mylsnudreifari ţakkar sendinguna og tekur undir hvert orđ.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Allt mitt verk er einskis nýtt
enginn mun ţess njóta
sé ţví trautt á torrent ýtt
til ţess dán ađ lóda.

Gleymist fljótt mitt fagra starf
fáir um ţađ tala
ef allt mitt pauf og allt mitt garf
engir niđurhala.

Endi ég mitt ćvipot
upp sér fáir kippa
ef bćkur mínar blöđ og krot
bísar ekki rippa.

Ef ţú ţjóđ, vilt minnast mín
og milda dauđahretiđ.
Troddu mér í skráarskrín
og skelltu mér á netiđ.
 
Davíđ Stefánsson
Á feisbúkkiđ mćđurnar mćta
viđ misvitrum ummćlum bćta.
Deila og dađra
dissa hver ađra
og kommenta loks: sćta-sćta.
 
Sigurđur Breiđfjörđ
Ég hafđi ekki grćnan grun
en gleđifrétt í dag ég les.
Nonni segir: Hér varđ „hrun“
— sem honum ţótti ekkert spes.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Hananú! Sandalinn galtómur í glugganum í morgun. Pabbi segir ađ ég eigi ađ vera löngu vaxinn upp úr ţví ađ fá í skóinn!

Hvađ er hann eiginlega ađ gefa í skyn?
 
Gísli á Uppsölum
Tíhíhíhí. Kombar varildi nofloss aga Arnaldur!

Ehehe ... abarno flage ebr úmúsla metsala!!!

Felomo tarasa jól tromli spúrr. Tíhíhí.
 
Einar Ben
Hippsterinn nefbleikur hímir viđ vegg.
Hljómsveitin fannst honum óvenju slöpp.
Skimar og gónir sem úlfur á egg
ađ einhverju kvenslags ađ taka á löpp.
Ađ ţetta grey skyldi álpast á legg,
agndofa spyr ég mig, rök eru knöpp.
Allt sem hann hefur er húfa og skegg
– viđ Hörpu loks króknar međ fingur viđ öpp.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Sandý međ látum nú lendir
og limlestir sköllótta örninn.
En CNN, seg mér hvađ hendir
– Jacqueline og vesalings börnin?
 
Grímur Thomsen
Berst úr dalnum fruss og fliss
– fari ţađ í úldiđ piss.
Landsliđsdruslan, vertu viss
var ađ tapa fyrir Sviss.
 
     1, 2, 3 ... 44, 45, 46  
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr ţjóđbók

Eru engin takmörk fyrir ţví hversu lágt ţessi Halldór LochNess eđa hvađ hann nú heitir sá ágćti mađur, getur lagst? Ég held nú ađ hann ćtti ađ einbeita sér ađ ţví ađ lćra stafsetningu en ađ bera út róg um sér siđprúđari og sómakćrri menn. En svona fyrst viđ erum á annađ borđ byrjađir á játningunum, hver var ţađ ţá sem drakk sig útúr og lét tattúvera sćnska fánann á bossann á sér eftir nóbelsverđlaunahátíđina? Ha?

Ég mótmćli ţví harđlega ađ borga 900 krónur fyrir skitinn bíómiđa. Ađ viđbćttu strćtófari, fram og til baka (560 kr.), gosfernu og nammi (ca. 600 kr.) er ţetta ekkert annađ en svívirđilegt rán um hábjartan dag...

Mjög mér leiđast ljóđahöld
um langa, stranga gróđaöld.
Heldur kýs ég fljóđafjöld
og flennisturlađ sóđakvöld.

Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA