Þjóðbók
Jónas Hallgrímsson
listaskald.blogmania.co.uk
Á degi þessum dunda ég mér gjarna
við draumkennt, pínu klæmið, vísnahnoð.
En þó að ég sé þjóðkunn ljóðastjarna
þykir mér það bragðdauft andans soð.
Versin eru væmin eins og múffa
þar vega orðin létt sem fiður hrafns.
En lengi tekur við mín skáldaskúffa
og skýlir þeim – og frægð míns góða nafns.
Jónas Hallgrímsson
Fari það í hálfhoppandi heitasta helvíti. Á nú að klína manni blásaklausum á einhverja peningalufsu? Eina ferðina enn. Hvað með Hófí? Hvað með Megas? Hvað með Baldur fokking Tryggvason?!
 
Jónas Hallgrímsson
Enginn kostur er mér sístur
– allar konur gisti.
Enda kjellinn yfirlýstur
öfgafemínisti.
 
Jónas Hallgrímsson
Hippsterinn með hattinn
hengslast bænum í.
Hann átti miðá erveifs
en allt var rusl á því.
Með hausinn oní hálsklút,
á hvítum, reyrðum skóm
og æfóntól í eyrum
– svo undurviðkvæmt blóm.
 
Jónas Hallgrímsson
Á skeljum heim ég skríð á ný
skjálfandi á beinum.
Við dögun hef ég dúxað í
drykkjutengdum greinum.
 
Jónas Hallgrímsson
Þó það vanti sæmd og setur,
sögu, klassa, torg.
Vill samt þetta vogatetur
verða Kópaborg.
 
Jónas Hallgrímsson
Er ég kem til Kanarís
af kæti mun ég springa.
Því ég splæstí Anal-Eaze
úr unaðskjörbúð Binga.
 
Jónas Hallgrímsson
Fallin er nú freyja, slæm í baki.
Fegurst kvenna, dýrðlegt stjörnublys.
Þó værún tæpra átta manna maki.
myndavélin heitast unni Liz.
 
Jónas Hallgrímsson
Um næstu helgi heiti því
að hamstra dóp og vín.
Svo hyggst ég stunda hórerí
og hegða mér eins og Sheen.
 
Jónas Hallgrímsson
Valinkunnar víæpíur
veislu halda þotulýð.
Bera þar í bleikjur víur
bótoxskrýmsl í erg og gríð.
Fagrar skinkur fylla stíur
flörta steratröllin blíð.
Ef ég teppi sósjalsíur
- sjálfum mér ég þangað býð.
 
Jónas Hallgrímsson
Heyrði á tal ungra drengja áðan. Annar sagðist vera með tvær fætur. Í framhaldi sagðist hinn bara vera með einan heila.

Þetta er búið.
 
Jónas Hallgrímsson
Ég ætla hér með að gera það að tillögu minni að samskiptatröllið Facebook verði upp á íslensku nefnt 'Fjölnir'. Fallegt – og sérlega lýsandi nafn.
 
Jónas Hallgrímsson
...er nú vinur Konráð Gíslason, Tómas Sæmundsson og 1 aðrir.
 
     1, 2, 3, 4, 5, 6, 7  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Úr þjóðbók

Ég vil bara taka það fram, að gefnu tilefni, að ég er ekki og hef aldrei verið í Þjóðkirkjunni. Bara svo það sé á hreinu.

Rosalega hef ég á tilfinningunni að ég hafi gleymt að slökkva á kaffikönnunni.

Að gefnu tilefni vil ég árétta það að geimverur eru alls ekki allar hættulegar. Af þeim 173,67 kvintilljón skráðum geimverum í nálægum vetrarbrautum eru ekki nema rétt rúmlega 4 kvaðrilljónir skráðar sem varasamar og aðeins um 34 billjarðar, tæplega, eftirlýstar fyrir skemmdarverk á annarra manna sólkerfum.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA