Þjóðbók
Jónas Hallgrímsson
listaskald.blogmania.co.uk
Á degi þessum dunda ég mér gjarna
við draumkennt, pínu klæmið, vísnahnoð.
En þó að ég sé þjóðkunn ljóðastjarna
þykir mér það bragðdauft andans soð.
Versin eru væmin eins og múffa
þar vega orðin létt sem fiður hrafns.
En lengi tekur við mín skáldaskúffa
og skýlir þeim – og frægð míns góða nafns.
Jónas frá Hriflu
WHOOP! WHOOP!
 
Steinn Steinarr
Gaf brabra;

ekkert eftir.
 
Dr. Helgi Pjeturss
Ég hefi af því þungar áhyggjur að amerískir kvikmyndadólgar sýna landið okkar æ oftar sem svokallaðan „tökustað“. Sérstaklega í tengslum við kvikmyndir sem ætlað er að höfða til vera af öðrum lífsstjörnum.

Ég tel aðeins tímaspursmál þar til gerkosmískar verur, t.d. geimverur fara að taka fólk, ófrjálsri hendi og án þess samþykkis, af þessum stöðum.
 
Fyrsti málfræðingurinn
Egill sendi:
„Bojobbobbobb skídlíbabbababojojojojo búbabobobobobobojojojoj heyjabobobboskiddlíbobbojojojobboboboj.“

Mylsnudreifari þakkar sendinguna og tekur undir hvert orð.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Allt mitt verk er einskis nýtt
enginn mun þess njóta
sé því trautt á torrent ýtt
til þess dán að lóda.

Gleymist fljótt mitt fagra starf
fáir um það tala
ef allt mitt pauf og allt mitt garf
engir niðurhala.

Endi ég mitt ævipot
upp sér fáir kippa
ef bækur mínar blöð og krot
bísar ekki rippa.

Ef þú þjóð, vilt minnast mín
og milda dauðahretið.
Troddu mér í skráarskrín
og skelltu mér á netið.
 
Davíð Stefánsson
Á feisbúkkið mæðurnar mæta
við misvitrum ummælum bæta.
Deila og daðra
dissa hver aðra
og kommenta loks: sæta-sæta.
 
Sigurður Breiðfjörð
Ég hafði ekki grænan grun
en gleðifrétt í dag ég les.
Nonni segir: Hér varð „hrun“
— sem honum þótti ekkert spes.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Hananú! Sandalinn galtómur í glugganum í morgun. Pabbi segir að ég eigi að vera löngu vaxinn upp úr því að fá í skóinn!

Hvað er hann eiginlega að gefa í skyn?
 
Gísli á Uppsölum
Tíhíhíhí. Kombar varildi nofloss aga Arnaldur!

Ehehe ... abarno flage ebr úmúsla metsala!!!

Felomo tarasa jól tromli spúrr. Tíhíhí.
 
Einar Ben
Hippsterinn nefbleikur hímir við vegg.
Hljómsveitin fannst honum óvenju slöpp.
Skimar og gónir sem úlfur á egg
að einhverju kvenslags að taka á löpp.
Að þetta grey skyldi álpast á legg,
agndofa spyr ég mig, rök eru knöpp.
Allt sem hann hefur er húfa og skegg
– við Hörpu loks króknar með fingur við öpp.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Sandý með látum nú lendir
og limlestir sköllótta örninn.
En CNN, seg mér hvað hendir
– Jacqueline og vesalings börnin?
 
Grímur Thomsen
Berst úr dalnum fruss og fliss
– fari það í úldið piss.
Landsliðsdruslan, vertu viss
var að tapa fyrir Sviss.
 
     1, 2, 3 ... 44, 45, 46  
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Í lægsta drifi lífið er
landið sjálft með krabba.
Best að hættað barma sér
– og borga allt með Dabba.

Nú ætla ég alls ekki að segja að hlutir sem eiga ekki að geta flotið geti ekki flotið. Og þaðan af síður ætla ég að efast um að eitthvað sé ómögulegt sem virðist vera ómögulegt. Ég hef mínar ástæður fyrir því.

En ég ætla samt að leyfa mér að efast um að krónan geti flotið.

Jæja. Þá er maður kominn heim frá Köben. Við Gudda tókum illa á því í Kristjaníu þannig að maður er soldið svona ryðgaður :) Gudda er hinsvegar í massastuði - hún skoraði nefnilega helvíti gott E í ferðinni sem hún náði að smygla til landsins í...

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA