Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Einhvern tímann hefði nú einhver fengið atgeir í kviðinn fyrir að segja það – en assgoti var þetta samt vel af sér vikið hjá norska krúttfiðlaranum.
Eftirpartí hjá mér í pottinum. Síðastur til að taka Nínu er fúlegg.
Ef þið losna viljið við
vonda karla, ljóta.
Í öllum bænum afnemið
alla kynjakvóta.
Líf mitt allt er eilíf raun
í einni hrinu
því engin þigg eg ofurlaun
frá almættinu.