Mætti á Austurvöll mér til heilsubótar og sjálfstyrkingar.
Hnoðaði meir að segja vænan snjóbolta og dúndraði í dönsku krúnuna, sem enn hvílir á Alþingishúsinu – okkur til háðungar og skammar.
Helvíti hressandi. Kallinn er ennþá með þetta.
Loksins, loksins hef ég fundið óumdeilanlegar sannanir fyrir blómlegu lífi á öðrum lífsstjörnum. Ég bendi öllum efasemdarmönnum að fylgjast með útsendingum frá vetrarólympíuleikunum í Vancouver.
Fari það í hlandblautan Heimdall og mæður hans margfaldar. Ætla nú þessir sísnuðrandi fornminjamerðir að færa landnámið mitt til ársins 720!. Ef þeir eru að vitna til þessara sólþurrkuðu egyptablesa sem voru hér að væflast þá get ég fullvissað menn um að það var ekki alvöru landnám. Þeir voru ekki hálfnaðir með þessar píramídalufsur sínar þegar við slátruðum þeim og skoluðum á haf út.