Leið á lífi Breiðný
liggur hás í ræsi.
Frægðar fall af stalli
– fokk hvat þetta sökkar.
Sé að það er sirkús í bænum. Sirkús er æði. Þegar ég var lítill langaði mig alltaf til að stinga af með sirkús. Var meir að segja orðinn nokkuð liðtækur í töfrabrögðum.
En svo varð auðvitað ekkert úr því. Sirkúsinn stakk einhvern veginn meira af með mér.
Sem marglyttur í pytti fúlum fljóta
feysknir, aldnir búkar hlaðnir mör.
Af visnum limum flögur húðar hrjóta
heitum þveita straum á sinni för.
Lötra milli bakka, brautir þvera
bleikt af klóri, líkþyrnd hrukkudýr.
Verst er augum þó að þurfa bera
þau í sturtu, flekkótt, blaut og rýr.