Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Hlandþynnt, helvítis djöfulsins grábölvuð andskotans vitleysa er þetta. Hann Eddie minn Murphy skilinn, enn eina bévítans andskotans ferðina. Helvíti sem honum helst illa á kvenpeningnum, eins og hann er nú skratti skemmtilegur.
Hlýtur að vera vindgangurinn, skilst að hann fylgi bévítans bótoxinu.
Falli Íslands á Evrópusviðinu verður víst best lýst með stefjahruni:
Austurblokkin evróflokkinn
illa lék – og grátt.
Úr dansi okkar drullusokkar
drógu allan mátt.