Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Landsins orðstír óðum deyr
ástandið er skósvart.
Hnípinn muldrar greyið Geir
– það gerðist bara óvart.
Í farveg tímans fræsti rák
Fischer, Róbert.
Hann lúnkinn var að leika skák
– en lét það ógert.
álögur íbúða
ógn eru háar
horfur á heimilum
hélugráar
gleypt hafa góðærið
gírugir apar
vísital vona
og væntinga hrapar