Þjóðbók
Jónas Hallgrímsson
listaskald.blogmania.co.uk
Heyrði á tal ungra drengja áðan. Annar sagðist vera með tvær fætur. Í framhaldi sagðist hinn bara vera með einan heila.

Þetta er búið.
Jónas Hallgrímsson
Vér auðmenn á svakalegt svall fórum,
þar svignuðu borð undan hnallþórum.
Þar menn höfðu mætur
og misjafnar gætur
á auðveldum íslenskum karlhórum.


 
Jónas Hallgrímsson
Hægri, vinstri, vestur, austur
vetur, sumar, upp og niður
Ef ég væri ungur, hraustur
ég allt það klæddí tjörog fiður.
 
Jónas Hallgrímsson
Vér mótmælum, allir sem einn
órétti, spillingu, valdi.
Hér kvenmaður næst ekki neinn
nema gegn ást, eður gjaldi.
 
Jónas Hallgrímsson
Bjartur dagur(,) bónda rís
bíða kvenna störfin þung;
að grípa flís á feitum sauð
og fitla ögn við súran pung
 
Jónas Hallgrímsson
Búið að hækka kardemommudropana! Og það rétt fyrir helgi!

Svona fer maður ekki með þjóðskáld!
 
Jónas Hallgrímsson
Kreppan holdgervist
í öskrum alþýðunnar
á baðvoginni.
 
Jónas Hallgrímsson
Af hverju þarf nú endilega að klína þessum bannsetta degi íslenskrar tungu upp á afmælið mitt? Geta þeir ekki níðst á einhverju öðru þjóðskáldi með þessari plebbalegu þjóðrembu sinni?

Ég hef raunar ákveðnar hugmyndir um það hvert þeir geta troðið þessari tungu sinni. En ég er of kurteist til að orða það á internetinu.
 
Jónas Hallgrímsson
Fjær er nú fornri
frægð sinni
þjóð í djúpri dellu;
ólánsmistur
auðs og fjárglæfra
sveipar Svörtuloft.

Fráleitt axlar ábyrgð
eigin klúðurs
ráðþrota ráðherrafans;
en öll þeirra óráð
fær alþjóð
um eilífð upp borgað.
 
Jónas Hallgrímsson
Landsins orðstír óðum deyr
ástandið er skósvart.
Hnípinn muldrar greyið Geir
– það gerðist bara óvart.
 
Jónas Hallgrímsson
Jæja, þá er líka búið að taka af manni amfetamínið.

Hvað verður það næst? Brennivínið? Kardemommudroparnir? Heita vatnið?
 
Jónas Hallgrímsson
Gráta nú gammar
glófjaðrir horfnar
þung falla él til jarðar.
Heillum er horfin
hugsýn fögur
skilja að skiptum bræður
 
Jónas Hallgrímsson
Fokk minn einasti hvað ég ætla að hrynja í það í kvöld.
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7  
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Ef einhver finnur einnota kodak myndavél með myndum sem svara til ofangreindrar lýsingar má sá hinn sami gjarnan hafa samband við mig.

Enn er maður hundsaður á þessum asnalegu tónlistarverðlaunum. Nýja sinfónían mín fyrir sundlaug, loftbor og lögreglukór gersamlega sniðgengin. Isspiss segi ég nú bara.

Jæja. Búinn að færa bekkenið og skrifpúltið á Guddu. Svo er bara að vona að þeir komist ekki í leynireikningana okkar í Barbaríinu.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA