Ţjóđbók
Kosiđ hef ég kúkalabba
kjána, bjána, idíjóta
sem skrökva, ljúga, ginna, gabba
gefin loforđ svíkja, brjóta.

Enda sjálfur aligrís
sem ekkert skárra kýs.
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Hvađa lýđskrymjandi frođusnakki datt í hug ađ kalla ţessa dragúldnu dökkdimmu dagleysu sunnudag? Hvílík og önnur eins andskotahelvísk óskhyggja. Nćr vćri ađ nefna ţessa viđvarandi ljósleysu blökkudag. Ţessum undirliggjandi ömurđarlygum ţjóđfélagsins verđur ađ linna.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Fastar bítur angist okkar
– á viđ kalda sturtu.
Dusilmenni, drullusokkar:
DRULLIĐ YKKUR BURTU!
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Allt mitt vćl og vol og breim
valdsins herrar dissa.
Skyldu opnast eyru ţeim
ef í ţau ég pissa?
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Aumleg fékk ég eyrnaskjól
ilmkerti og konfektstamp.
Helst ţó ţráđi ţessi jól
ţokkalega sterkan hamp.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Skítţurrkađar skrattatíkur
sköttum mínum torga.
Ćtli ég verđi aftur ríkur
ef ég hćttađ borga?
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Dćmalausir drullusokkar.
Durtaher í öllu fokkar.
Sjálfumglađir sullasmokkar
sinna engu köllum okkar.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Hvur ćtlu séu viđurlög viđ ţví ađ skjóta skunk? Eđa mörđ?

Ţeir hafa nokkrir veriđ ađ sniglast hér í bakgarđinum undanfariđ. Og haldiđ fyrir mér vöku.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Ég vissi ekki ađ ţađ vćri hćgt ađ pissa í sig af gremju út í óréttlćti heimsins. Ţá veit mađur ţađ.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Haldiđi ekki ađ drulluskítapésa-bankablóđsugan í nýja Búnađarbankanum ćtli ađ lćkka launin úr frámunasvívirđisjúklega háum í stjarnfrćđisvínsgerrćđislega svimandi há, til samrćmis viđ niđursettu spensuguna í nýja Útvegsbankanum. Sćtt af honum.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Flón sem eigiđ föđurland
fylltu raunum
ylja sér viđ eigiđ hland
á ofurlaunum.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Ef enn einn fjandans ekkisens kjólklćddi erkibjálfinn déskotast til ađ líkja efnahagsástandinu viđ sjómennsku eđa veđur skal ég svoleiđis elta hann uppi og trođa öllu ţví sem trođiđ verđur á bólakaf í jafnt bak- sem ţverrifurnar á honum.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Fari ţađ í fjórtán forherta fyrirbura frá Fáskrúđsfirđi, góđćriđ búiđ og ég náđi ekki svo mikiđ sem ađ kaupa mér flatskjá!
 
        1, 2, 3, 4, 5  
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr ţjóđbók

Ek fór í dag međ silfurkistil minn í banka og skipti öllu klabbinu í evrur.

Taldi ek ţat múv gott.

Ţvílík niđurlćging. Ég ađ leika jólasvein í Glćsibć. Ég! Listaskáldiđ góđa. Gaulandi gekkégyfirsjóog land og adamáttisynisjö - ţvílíkur annar eins hortittlingaskítur og leir.

Eins gott ađ ég fái nóg fyrir vćnum sjenna fyrir ţetta helvíti.

Sáuđ ţiđ hana systur mína?
sú var orđin helst til full.
Kokhraust innbyrti áfengt sull;
loks fór hún glaseygđ ađ gráta og hrína.

Af henni ganga ýmsar sögur;
oft hún lyftir sér á kreik
ítrekađ fer hún í flennisleik
– sjón sem ađ seint ţykir fögur.

Nćfurţunn á nýjum degi
– međ nýćlt galliđ út á kinn –
eigrar hún uns unnustinn
finnur hana á förnum vegi.

Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA