Þvílíkur plebba- og molbúaháttur alltaf hreint. Nú á skyndilega að fara að spara og skera niður hljófærakostnað við frumflutning á nýju sinfóníunni minni, Hæni.
Hvernig dirfast þessir aumu peningamenn að stinga upp á slíkum helgispjöllum? Þegar ég segi að eitthvað skuli leikið á 20 tundurdufl, uppstoppaðan pandabjörn og hljómandi flugmóðurskip – þá er það bara þannig!
Hmm. Nú er verið að fárast yfir þvoglumælgi einhverrar kratalufsu í ræðustól á alþingi. Það þykir mér týra.
Má sumsé skilja það sem svo að menn séu almennt farnir að mæta edrú í þingsali?
Þetta voru nú ljótu úrslitin :(. Að mínir menn geti ekki einu sinni slefað formanninum inn á þing er auðvitað gersamlega glatað. Það hefði betur farið á því að hafa kind í 1. sætinu, eins og ég stakk upp á...