Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Þórunn, hún þarf sig að passa.
Þurfi hún hljóðnemað kjassa
mætti hún minna
mala við kynna
um annarra ættingja rassa.
Ég er tvöhundruð í dag.
Ég er tvöhundruð í dag.
Ég verð gleymdur á morgun
en ég er frægur í dag.
Lindir hugans gára grjót.
Gallsúr streyma tárafljót.
Sumum er þá sárabót
að sukka feitt um áramót.