Þjóðbók
Sigurður Breiðfjörð
siggibreik.rimnablogg.is
Smyr þú maga mýktum baunum,
munnvatn saltar, léttir raunum,
vinda leysir, leggst að hlaunum,
loftin fyllir úldnum daunum.
Sigurður Breiðfjörð
Ég hafði ekki grænan grun
en gleðifrétt í dag ég les.
Nonni segir: Hér varð „hrun“
— sem honum þótti ekkert spes.
 
Sigurður Breiðfjörð
Mjög mér leiðast ljóðahöld
um langa, stranga gróðaöld.
Heldur kýs ég fljóðafjöld
og flennisturlað sóðakvöld.
 
Sigurður Breiðfjörð
Erikur!, Erikur!
útvarpið galar.
Erikur!, Erikur!
eru nú falar.
Erikur!, Erikur!
á ég að hlaupa?
Er ykkur, er ykkur
einhver að kaupa?
 
Sigurður Breiðfjörð
Kætast stórum kynja beggja
kvennaskólameyjar.
Bólgin augu aftur leggja
emmerringapeyjar.
 
Sigurður Breiðfjörð
Að nefna húsfrú hlussu og brussu
er harðbannað.
En kalli ég hana kellingartussu
kemst ég upp með það.
 
Sigurður Breiðfjörð
Seljabrytableikjulið
boðið mun mér vart í.
En hangið get ég heima við
og halt míns eigins partí.
 
Sigurður Breiðfjörð
Bónus-Jói bakkar frá;
ber fyrir sig nísku.
Fornfræg kaupmannskempan þá
komin er úr tísku.
 
Sigurður Breiðfjörð
Þórunn, hún þarf sig að passa.
Þurfi hún hljóðnemað kjassa
mætti hún minna
mala við kynna
um annarra ættingja rassa.
 
Sigurður Breiðfjörð
Ikea í Ameríku!
Aldrei venst því ríkra slekt.
Flíka skaltu fráleitt slíku
– forljótt, sænskt og tíkarlegt.
 
Sigurður Breiðfjörð
Fátt er nú um fína þætti
flötum á skjám.
Sáttur væri, ef ég ætti
örlítið klám.
 
Sigurður Breiðfjörð
Ó þú blakki blíði makki
bylt úr hnakki, illa fallinn.
Fyrir hakk þitt, þúsund þakkir
þín mun saknað, heillakallinn.
 
Sigurður Breiðfjörð
Rogginn mogga mætir á
maðurinn – sem þóttist látinn.
Bloggar foggill þjóðin þá:
það er komið Dabb í bátinn.
 
     1, 2, 3  
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Þá er kjeps skriðinn yfir hundrað ára múrinn. Ekki seinna vænna að byrja að blogga.

Mig langar að byrja á því að ítreka það (til að fyrirbyggja allan misskilning (og rangtúlkanir (sumra))) að tíminn er eins og vatnið.

Ég vil, að gefnu tilefni, minna á að síðustu forvöð til að senda jólakveðjur til annarra lífsstjarna eru kl. 10.30 í fyrramálið.

Athugið einnig að ekki verður tekið við fleiri kveðjum frá framliðnum. Kóbaltið er á þrotum á lager.

Ég hefi komist að því að „rass“ er fyndnasta orð í íslenskri tungu. Þess vegna hefi ég lagt til við ríkisstjórnina að orðið verði friðað um alla eilífð svo það glatist ekki eða skipti um merkingu eins og hin geypifyndnu orð „sími“ og „skjár“ gerðu svo óeftirminnilega...

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA