Snert fésbók mína, femínistadís
svo fái ég mér aldrei strákaís.
Við stöðu mína kát þú kommentar
um kynjahalla mjókuriðnaðar.
Ef fávitar sem fitla netið við
hin femínísku gildi setja á bið.
Þú karlrembur þá kallar, nógu hátt
þá klæða þeir sig aldrei meir í blátt.
Ég heyri á fésbók villtan veggjaþyt.
frá valkyrjum sem eru alveg bit.
Snert fésbók mína, femíníska dís
svo fái ég mér kynjafnaðan ís.
Ef hún Eva fer
ég ætla mér
að finna okkur annað sker
sem enginn sér.
Norskr félagi bauð mér með í útrás um næstu helgi. Í Barbaríið.
Ek svaraði að bragði: Fokk þú þér.