Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Þvílík ekkisens vonbrigði. Að láta þessa kotrosknu rauðbrystinga stela sigrinum, óverðskuldað, í framleingingu - hneyksli. Það held ég að ef hann Eiður okkar hefði enn verið í röðum blástakkanna hefði hann ekki látið þessa ófrýnilegu spóaleggi komast upp með viðlíka moðreyk...
Það er allt annað líf að mála uppi á Þingvöllum, eftir að ég fékk mér iPodinn. Hlustaði á Duran Duran á blastinu meðan ég málaði fullt, fullt af hrauni og tvær rjúpur...
Þó það vanti sæmd og setur,
sögu, klassa, torg.
Vill samt þetta vogatetur
verða Kópaborg.