Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Fyrir þá sem eru í vandræðum fyrir morgundaginn langar mig í eftirfarandi í afmælisgjöf:
1. Playstation 3
2. Mamma Mia (DVD)
3. Myrká
4. Nýja sandala (helst crocs, bleika)
6. Singstar ABBA
7. Superman safnið (DVD)
8. Superman náttföt og/eða rúmföt
9. TLToC, 20 ára afmælisútgáfu (DVD)
10. Frið á jörð (fyrir mömmu)
Og að gefnu tilefni vil ég taka fram að ég er ekki að safna biblíum.
Naujnauj. Fimmhundruðkallinn bara að verða tvíalda í ár. Imba, ef þú lest þetta, þá er óskalistinn svohljóðandi:
1) iPad 2.
2) Þrívíddarsjónvarp.
3) Konungssamband við Danmörku.
Voðalegt endemis vesen alltaf á þessari krónu. Ég sagði alltaf að það væru mistök að hætta með blessuð kúgildin.
Það held ég væri ólíkt fjörugra í kauphöllinni í dag, væru þau enn við lýði.