Spikuðu landeyður finniði fjandann
og fáið að skríðí hans kör.
Takið svo andskotans efnahagsvandann
og etið með hlandsýrðri mör.
Einhverjir hafa velt því fyrir sér hvaða skoðanir ég hafi á Evrópusambandsaðild Íslands, jafnvel gert mér þær upp. Ranglega.
Vitanlega styð ég hana heils hugar. Enda heyrir Evrópa blessunin ekki undir Danmörku, að því er ég best veit.
Aukinheldur treysti ég Evrópusambandinu töluvert betur til að glopra ekki niður sjálfstæði Íslands; þjóð, tungu og sögu, en þvermóðskufullum og valdagírugum bavíönum, svona almennt séð. Gildir þá einu hvort umræddir bavíanar eru íslenskir eða danskir.
Öll af hinu illa
eining borgar reynist.
Styrkt með stráum virki;
staulast þar um aular.
Feilar fáum dyljast,
fylgis dræm er bylgja.
Ból hins beygða Óla
bælir enginn lengur.