Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Skáld um götur skælast
skrumi hlaðinn aðall.
Ljóðfífl lofgjörð snæða
lek er þeirra speki.
Illt finnst mér hve allir
elta smjaðurgeltið,
dapurt daunillt hæpið
– djók er hátíð bóka.
Fokkiddípokkiddí æseifæla
uglumrugl og drullumsull.
Sökkiddímökkíddí þeysiþvæla
þvílíkt ansans hnullungsbull.
Við elskum okkar smjör.
Það er gult og mjúkt.
Og meistarakokkarnir segja:
Að þetta sé.
Besta smjör heimsins!
En þetta er bara tímabundið ástand.
Við höfum áður flutt inn smjör.
En þetta stafar af því.
Að það er.
Neyslubylting í fitunni!
Og við verðum að fá þetta smjör frá vinum okkar Írunum.
Og setja í örfáar vörur.
Og svo kemur bara næsta ár.
Með allri sinni mjólk!