Ég má til með að vekja athygli á því óréttlæti sem kjósendum á öðrum tilverustigum er sýnt. Það er óþolandi að atkvæði sem berast eftir gerkosmískum leiðum séu ekki tekin gild. Og það er grátlegt að milljónir megineigindlegra atkvæða skuli þannig glatast vegna skilningsleysis og þröngsýni yfirvalda.
Þá er páskaplanið að komast á hreint.
Út að borða með strákunum annað kvöld, rauðvín og næsheit.
Sörpræspartí í Hlíðunum á föstudaginn, e-ð sem Júddi er búinn að vera að plotta. Líklegt að maður hangi þar eitthvað fram eftir nóttu – alveg hellaður.
Tek það svo bara massarólega á laugardaginn og fer síðan í mat til pabba gamla á sunnudaginn – þ.e.a.s. ef ég kem mér aftur á lappir.
Á mánudaginn ætla ég svo á skíði með Mæju.
Ef daðrar við þig dáti
og duflar upp úr skónum
þú endar ein á báti
með ógleði, á sjónum.