Ţjóđbók
Egill Skallagrímsson
egillskall.omniblog.no
Ek fagna ţví at taka eigi í lurg nafnleysingja ok slefbera á Internetinu.

Sérstaklega vćri ek til í ná í skottiđ á duglausu rógburđarlyddunni sem skrifađi Eglu.
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Djöfuls andskotans auđvaldspungar og gróđabísar, mergsjúgandi mann í vöku sem draumi. Réttast vćri ađ taka ţessa snápa alla sem einn og blóđflengja ţá međ vćnum hrísvendi á fitubólginn bossann...
 
Halldór Kiljan Laxness
Ţvílík ekkisens vonbrigđi. Ađ láta ţessa kotrosknu rauđbrystinga stela sigrinum, óverđskuldađ, í framleingingu - hneyksli. Ţađ held ég ađ ef hann Eiđur okkar hefđi enn veriđ í röđum blástakkanna hefđi hann ekki látiđ ţessa ófrýnilegu spóaleggi komast upp međ viđlíka mođreyk...
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Viđ Gudda kíktum út ađ éta í gćrkvöldi. Maturinn var ágćtur sosum, ég fékk mér signa grásleppu á hvannjólabeđi og Gudda fékk sér gufusođnar lambalappir međ púđursykurgljáđu skarfakáli. Ágćtismatur alveg. Allavega - svo fengum viđ reikninginn og ţá rak mig í rogastans. Tólf krónur fyrir signa grásleppu og sjö krónur og 13 aura fyrir lambalappirnar! Ţetta er náttúrulega galiđ. Sérstaklega í ljós ţess ađ náunginn sem afgreiddi okkur var einhver fjandans útlendingssauđur sem ekkert virtist skilja- sennilega kominn hingađ frá ...
 
Egill Skallagrímsson
Kjaftagangr alltaf á ţessu alneti. Af gefnu tilefni tek ek fram ađ ek er ekki Snorri sonur Sturla. Ţađ er ţvćttingr. Ok ek er ekki heldr Auđr Haralds...
 
Jón Sigurđsson
Ég mótmćli ţví harđlega ađ borga 900 krónur fyrir skitinn bíómiđa. Ađ viđbćttu strćtófari, fram og til baka (560 kr.), gosfernu og nammi (ca. 600 kr.) er ţetta ekkert annađ en svívirđilegt rán um hábjartan dag...
 
Jónas Hallgrímsson
Dem, hvađ er í gangi?! Er kominn međ massa útbrot á neđri vörina. Ćtli druslan sem ég var ađ skvetta í um helgina hafi veriđ međ frunsu..? Mar á náttlega ađ passa sig á ţessum dönsku...
 
Jónas frá Hriflu
Mikiđ assgoti er alltaf gaman ađ honum Jack Bauer í 24. Ţađ er alvöru karlmađur. Lćtur ekki vađa yfir sig á skítugum skónum, hvorki kómúnista né ađra. Betur ađ viđ hefđum nokkra svona gutta í flokknum, annađ en ţessar aumu gufur sem eru ađ skríđa undan pilsfaldinum ţessi misserin...
 
Grímur Thomsen
Ó, vei! Illt er í efni. Fátt er til ráđa. Hvurt skal halda? Hvar skal drukkiđ? Hvar skal stiginn dans og duflađ viđ drósir? Hvar er skemmtun ađ finna ţá Pravda er brunnin? Ó, hvar?!
 
Jóhannes S. Kjarval
Vođalega fer ţađ í taugarnar á mér ţegar fólk er ađ hengja óklárađar og krumpađar skissur eftir mig upp á vegg. Hefur ţetta fólk engan smekk? Kommon. Ţađ er ekki eins og hver einasta servíetta sem ég snýti mér í sé gargandi meistaraverk...
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Af hverju talar enginn stjórnmálaflokkur fyrir bćttri stöđu holdsveikra hér á landi? Hvađ er eiginlega máliđ? Ţađ er hreinlega tekiđ á ţessum málum eins og veriđ sé ađ fjalla um málefni ... tjahh ... holdsveikra...
 
Jónas Hallgrímsson
Note to self: Ekki drekka rakspíra áđur en mađur fer í rauđvínspartý í menntamálaráđuneytinu.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Fari ţessir grábölvuđu andskotans söluturnatittir í bullsjóđandi heitasta helvíti allir sem einn. Ađ geta ekki drulludéskotast til ađ lćkka sykurleđjuna heldur halda áfram ađ okra á okkur undirtrođnum akfeitum smćlingjunum. Landeyđur og lyddur, allir sem einn - og ekkert nema andskotans...
 
        1, 2, 3 ... 43, 44, 45, 46  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Úr ţjóđbók

Ég vil bara nefna ţađ hér ađ Hriflu-Jónas er forneskjulegur vćlukjói og barnaleg pissudúkka sem kann ekki ađ meta alvöru bókmenntir. Og honum er sko ekki bođiđ í afmćliđ mitt.

Gjarnan mega fussog frussa
fjöll – og iđrum jarđar spúa
yfir mćdda mussuskussa
melankólíska og bljúga.

Ef ykkur vantar heilrćđi um hvar er best ađ skera niđur ţessa dagana, ţá mćli ég persónulega međ ţjóđkirkjunni.

Svona ykkur ađ segja er hún ekki alveg ađ dansa – eđa svo segir pabbi minn ađ minnsta kosti.

Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA