Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Almáttugur minn einasti. Tónleikar eftir korter og ég finn hvergi sólóostaskerann.
Sullaði hnetusmjörsbananavalíumsjeik yfir pallíettunáttfötin mín! Hjálp - einhver!
Hvað ætli ég sé búinn að boða til margra blaðamannafunda um líf á öðrum lífstjörnum í gegnum tíðina? Svo þegar NASA gerir það ... þá er það eitthvað voðalega merkilegt. Isspiss segi ég nú bara.