Ég hefi gert stórkostlega uppgötvun. Svo virðist sem stór hluti þeirra sem komu á einhvern hátt að hruninu búi í annarri tilvistarvídd en þorri almennings, vídd þar sem önnur lögmál og viðmið ríkja en við eigum að venjast. Ef rétt reynist eru þetta stórkostleg gerkosmísk tíðendi. Nú þarf ég einungis að ná þessum mönnum og kryfja þá.
Kjaftagangr alltaf á þessu alneti. Af gefnu tilefni tek ek fram að ek er ekki Snorri sonur Sturla. Það er þvættingr. Ok ek er ekki heldr Auðr Haralds...
Ég mótmæli því harðlega að borga 900 krónur fyrir skitinn bíómiða. Að viðbættu strætófari, fram og til baka (560 kr.), gosfernu og nammi (ca. 600 kr.) er þetta ekkert annað en svívirðilegt rán um hábjartan dag...
Dem, hvað er í gangi?! Er kominn með massa útbrot á neðri vörina. Ætli druslan sem ég var að skvetta í um helgina hafi verið með frunsu..? Mar á náttlega að passa sig á þessum dönsku...
Mikið assgoti er alltaf gaman að honum Jack Bauer í 24. Það er alvöru karlmaður. Lætur ekki vaða yfir sig á skítugum skónum, hvorki kómúnista né aðra. Betur að við hefðum nokkra svona gutta í flokknum, annað en þessar aumu gufur sem eru að skríða undan pilsfaldinum þessi misserin...
Ó, vei! Illt er í efni. Fátt er til ráða. Hvurt skal halda? Hvar skal drukkið? Hvar skal stiginn dans og duflað við drósir? Hvar er skemmtun að finna þá Pravda er brunnin? Ó, hvar?!
Voðalega fer það í taugarnar á mér þegar fólk er að hengja ókláraðar og krumpaðar skissur eftir mig upp á vegg. Hefur þetta fólk engan smekk? Kommon. Það er ekki eins og hver einasta servíetta sem ég snýti mér í sé gargandi meistaraverk...
Af hverju talar enginn stjórnmálaflokkur fyrir bættri stöðu holdsveikra hér á landi? Hvað er eiginlega málið? Það er hreinlega tekið á þessum málum eins og verið sé að fjalla um málefni ... tjahh ... holdsveikra...
Fari þessir grábölvuðu andskotans söluturnatittir í bullsjóðandi heitasta helvíti allir sem einn. Að geta ekki drulludéskotast til að lækka sykurleðjuna heldur halda áfram að okra á okkur undirtroðnum akfeitum smælingjunum. Landeyður og lyddur, allir sem einn - og ekkert nema andskotans...
Sjitt - ég var að þrífa bílinn í gær. Tók hann allan í gegn, bónaði og allt maður. Pússaði felgurnar og ég veit ekki hvað og hvað. Heyrðu, svo var ég að ryksuga aftursætið - hefur þá ekki einhver spýtt útúr sér ópali sem hefur klístrast fast við sætið! Ógeðslegt - alveg er ég viss um að fíflið hann Grímur hafi...
Ég samdi gríðarlega tilkomumikið kvæði í gærkvöldi. Um hafið, þögnina og nóttina. 24 erindi. Ég var örmagna á eftir og sofnaði fram á skrifborðið. Þegar ég vaknaði var fartölvan rafmagnslaus og bannsett átóríkoveríið náði ekki nema fyrsta erindinu. Moðerfokking drasl...