Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Skelfing er hann Árni minn
óttalega hvorki né.
Uppí sveit er eyminginn
að eigin sögn, að sækja fé.
Hver hefði trúað því fyrir hundrað árum síðan, að líf gæti þrifist á jafn eyðilegum ömurðarbletti og Hafnarfirðinum?
Sjálfur trúi ég því ekki ennþá.
Jæja, þá er óveðrið skollið á. Gaman. Næst verða það eldgos og nokkrir góðir skjálftar. Svo móðuharðindin hin nýju.
Pabbi er voða pirraður eitthvað út í ykkur núna. Er jafnvel að spá í að taka saltstólpann á mestu græðgispésana.