Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Skotilbara. Það er komin út bók um mig.
Helvíti þykk meir að segja.
Læt Guddu tékka á henni.
Jæja. Þá styttist í páskana. Gaman. Eins gott að maður nái þessum séreignasparnaði út í tíma.
Djísisfokkingskræst. Það tilkynnist hér með að ég hefi sagt mig úr Framsóknarflokknum.