Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Frábært. Þá er maður endanlega hættur að fá að ríða út á að hafa fundið Ísland – meir að segja hér í Manitoba. Takk fyrir það útrásarfávitar.
Jæja, þá veit ég hversu mörg essemmess þarf til að færa Íslandi 12 stig.
Það sem ég veit hins vegar ekki er hversu brjálaður Konráð verður þegar hann fær símreikninginn sinn.
Ek fór í dag með silfurkistil minn í banka og skipti öllu klabbinu í evrur.
Taldi ek þat múv gott.