Helvítis rugl. Ég hefði betur tekið mark á honum Júdasi mínum þegar hann sagði okkur strákunum að selja allt í fyrra. Annað en þessum svikulu verðbréfapésum.
Ég vil árétta það hér að ég mæti aldrei í fermingar, sama hver á í hlut. Mér þykja þær með afbrigðum leiðinlegar - aukinheldur sem mér ofbýður græðgin og mæjónesið.
Og nei, ég veit ekki um neinn annan skemmtikraft með svipað prógramm.
Nef ég þerra; vorið vekur
vefi þrútinna nasa.
Ef ég hnerra horið lekur
– hef því klút minn í vasa.