Þjóðbók
Halldór Kiljan Laxness
nobelsskald.freeblog.tk
Fari það í fúlan pytt. Er nú verið að næla stórriddarakrossi á einhvurja vesturíslenska ballerínu! Isspiss. Allir geta nú feingið þetta glingur. Mín fer rakleitt á íbei eftir helgi...
Sigurður Nordal
Góður vinur minn, lærður mjög og mikilsvirtur bróðir í fræðinum kom til mín, slefandi af geðshræringu og hjúfraði sig upp að mér. Sagði með ekkasogum að hann væri hættur með lávaxna forverðinum með ístruna og tjúguskeggið. Ástæðan? Jú, sá síðarnefndi sagðist fá of mikil útbrot af hugvitsamlegum tilraunum þeirra með ýmis forvörsluefni á leynilegum fundum þeirra í Þjóðdeild Landsbókasafnsins...
 
Jón Sigurðsson
Á nú enn og aftur að fara að sleikja sig upp um bakraufina á þessari bannsettu Evru? Vilja þessir háu herrar ekki bara taka upp danska fánann aftur? Og nýta sér stöðugleika og hagkvæmni þýska þingsins í stað þess íslenska? Franski þjóðsöngurinn er líka æði, af hverju getum við ekki notað hann? Og er ekki upplagt að næla sér í litla, netta, ítalska fjallkonu, frekar en þessar þunglamalegu jussur sem við sitjum uppi með?



 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Öngva á ég sokka

(ennþá síður skó)

- en meir en nóg af naflaló!
 
Jóhannes S. Kjarval
Fokk hvað mosi er gegt töff.
 
Dr. Helgi Pjeturss
Ótrúlegt að menn skuli enn fyllast hugaræsingi þegar minnst er á apakenningu Darwins, en hún á rætur allt aftur til daga Anaxímanders, hins gríska. Og enn ótrúlegra raunar að menn skuli ekki veita meiri eftirtekt kenningu Pýþagorasar í Filosofúmenu um að sálir dýranna komi frá stjörnunum. En menn hverfa tæpast svo glatt frá heilstefnunni.
 
Sigurður Nordal
Vinur minn í fræðunum, stór og stæðilegur, afar fróður og með mikinn og einlægan áhuga á hvers kyns afkimum mannlegrar hegðunar kom til mín mað grátstafinn í kverkunum og sagðist ekki geta þetta lengur. „Geta hvað?“ spurði ég sakleysislega þó ég vissi fullvel að hann væri að vísa til eldheitra ástaratlota sinna og feitlagna nærsýna bókavarðarins með uppsnúna efrivararskeggið í ónefndri matvöruverslun hér í bæ...
 
Einar Ben
Jæja. Ég var í alla nótt að vinna í nýja 30 erinda kvæðinu mínu um fossana. Það er farið að taka á sig mynd og er bara býsna gott kvæði, þó ég segi sjálfur frá.
Það lítur þá orðið svona út (en ég ítreka að þetta er enn í vinnslu):

    FOSSAR

    Falla ógnar fossar eins og ...

Svo eitthvað sem ég á eftir að ákveða.
 
Jónas Hallgrímsson
Note-to-self: Terpentína, spjald af getnaðarvarnarpillum og kassi af ofgerjuðu krækiberjavíni = slæm hugmynd á mánudagskvöldi.
 
Dr. Helgi Pjeturss
Ég má til með að minna lesendur míona á hina frábæru bók L.I. Reichenau; Neuland, Umrisse eines Weltildes. Ekki er nóg með að höfundur tali um lífið sem hleðslu, líkt og ég - heldur ræðir hann mikið um grundvallarhugtök, sem ég hef nefnt lífaflsvæði og lífstarfsíleiðslu - og svo auðvitað sjálfsagt framhaldslíf á öðrum jarðstjörnum. Geggjuð bók sem maður leggur ekki frá sér.
 
Sigurður Nordal
Vinur minn í fræðunum, sem ég veit að er mikill tilraunamaður í svefnherberginu kom að máli við mig og sagði farir sínar ekki sléttar. Svo virtist sem ungi, kynþokkafulli, sænski norrænufræðingurinn sem hann hefur verið að hitt á laun í handritageymslunni hafði ofboðið honum þegar sá vildi að hann læsi upp úr Konungsbók Eddukvæða, meðan á atlotunum stæði. Já það er vandlifað í þessum heimi.
 
Halldór Kiljan Laxness
Namminamminammnamm! Nýkreistur abilsínusafi. Það toppa öngvir aðrir safar nýkreistan abilsínusafa. Öngvir segi ég!
Nema kanski paufburkusafi.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Það er nú meiri helvítis andskotand djöfulsins hitinn alltaf á þessu skeri. Það er ekki nema vona að það sé allt pakkfullt af grábölvuðum geitungunum í hverju helvítis horni. Hvernig væri nú að fá eitt almennilegt andskotans frostasumar hérna? Maður er skrattakornið að stikna hér lifandi...
 
        1, 2, 3 ... 41, 42, 43, 44, 45, 46  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Enter – 13/5/13
 
Lesbók
Úr þjóðbók

Leið á lífi Breiðný
liggur hás í ræsi.
Frægðar fall af stalli
– fokk hvat þetta sökkar.

Að gefnu tilefni vil ég árétta það að geimverur eru alls ekki allar hættulegar. Af þeim 173,67 kvintilljón skráðum geimverum í nálægum vetrarbrautum eru ekki nema rétt rúmlega 4 kvaðrilljónir skráðar sem varasamar og aðeins um 34 billjarðar, tæplega, eftirlýstar fyrir skemmdarverk á annarra manna sólkerfum.

Skelfing er mér bumbult.

Enda búinn að snúa mér stanslaust í gröfinni alla vikuna.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA