Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Ég get nú ekki annað en verið himinlifandi með nýjustu myndina um Indiana Jones, enda myndin bersýnilega undir sterkum áhrifum frá kenningum mínum um nýal og hið mikla samband.
Höfuðskeljarnar sem sagan hverfist um hefðu þó að ósekju mátt vera úr kóbalti, því eins og allir sæmilega gefnir menn vita er vonlaust að ná gerkosmísku sambandi um kristal.
Þig kornbrennda glóðheita gríp ég úr rist
og gylli í einhliða margarínbaði.
Meymjúkum ostsneiðum legg þig af list
löðraðar dreyrrauðu rifsmarmelaði.
Er Patrekur hinn svæsni svifinn burtu?
Sakna munu flestar þjóðir hans.
Með honum fljóðin fjölmenntu í sturtu
forðum – þá hann steig sinn sóðadans.