Vaknaði í morgun, innblásinn. Ætlaði að setjast niður og semja tíræðan bálk um frosthörkur, fannfergi og baráttu nútímamannsins við náttúruna.
Festist svo fyrir framan Opruh og verð ekkert úr verki.
Snert fésbók mína, femínistadís
svo fái ég mér aldrei strákaís.
Við stöðu mína kát þú kommentar
um kynjahalla mjókuriðnaðar.
Ef fávitar sem fitla netið við
hin femínísku gildi setja á bið.
Þú karlrembur þá kallar, nógu hátt
þá klæða þeir sig aldrei meir í blátt.
Ég heyri á fésbók villtan veggjaþyt.
frá valkyrjum sem eru alveg bit.
Snert fésbók mína, femíníska dís
svo fái ég mér kynjafnaðan ís.
Dæmigert. Enn og aftur verður notaleg og sálhreinsandi menningarreisa til Glückstadt að víkja fyrir hugardeyfandi flatmögunarferð í Barbaríið. Alltaf skulu þessar kellingar ráða för.