Ég vil bara beina þeim tilmælum til samninganefndar Íslendinga að reyna að kría út að minnsta kosti tylft skipaferða hingað frá Noregi á ári. Af fenginni reynslu eru sex einfaldlega ekki nóg.
Skrambinn, ef ég hefði nú bara tekið stefnuna á Kepler 22b í staðinn fyrir þetta volaða skítasker. Þá værum við þar núna í góðu flippi í brakandi blíðu.
Að því gefnu reyndar að knörrinn hefði náð ljóshraða, eða þar um bil.