Kreppan holdgervist
í öskrum alþýðunnar
á baðvoginni.

Jónas Hallgrímsson
Vér mótmælum, allir sem einn
órétti, spillingu, valdi.
Hér kvenmaður næst ekki neinn
nema gegn ást, eður gjaldi.

Jónas Hallgrímsson
Bjartur dagur(,) bónda rís
bíða kvenna störfin þung;
að grípa flís á feitum sauð
og fitla ögn við súran pung

Jónas Hallgrímsson
Búið að hækka kardemommudropana! Og það rétt fyrir helgi!
Svona fer maður ekki með þjóðskáld!

Jónas Hallgrímsson
Af hverju þarf nú endilega að klína þessum bannsetta degi íslenskrar tungu upp á afmælið mitt? Geta þeir ekki níðst á einhverju öðru þjóðskáldi með þessari plebbalegu þjóðrembu sinni?
Ég hef raunar ákveðnar hugmyndir um það hvert þeir geta troðið þessari tungu sinni. En ég er of kurteist til að orða það á internetinu.

Jónas Hallgrímsson
Fjær er nú fornri
frægð sinni
þjóð í djúpri dellu;
ólánsmistur
auðs og fjárglæfra
sveipar Svörtuloft.
Fráleitt axlar ábyrgð
eigin klúðurs
ráðþrota ráðherrafans;
en öll þeirra óráð
fær alþjóð
um eilífð upp borgað.

Jónas Hallgrímsson
Landsins orðstír óðum deyr
ástandið er skósvart.
Hnípinn muldrar greyið Geir
– það gerðist bara óvart.

Jónas Hallgrímsson
Jæja, þá er líka búið að taka af manni amfetamínið.
Hvað verður það næst? Brennivínið? Kardemommudroparnir? Heita vatnið?

Jónas Hallgrímsson
Gráta nú gammar
glófjaðrir horfnar
þung falla él til jarðar.
Heillum er horfin
hugsýn fögur
skilja að skiptum bræður

Jónas Hallgrímsson
Fokk minn einasti hvað ég ætla að hrynja í það í kvöld.

Jónas Hallgrímsson
Ég hef ákveðið að uppfæra orðaforða minn til að vera í takt við tímann: Í stað þess að segja „Segðu...“ þegar ég er sammála síðasta ræðumanni segi ég núna „Heldurðu...“ Miklu meira inn.

Jónas Hallgrímsson
Gerði mér lítið fyrir árla morguns og meig hressilega á styttuna af listaskáldinu góða í Hljómskálagarðinum. Það þótti mér fyndið.

Jónas Hallgrímsson
Um þrengsli siglir þjóðarfley.
Þyrsti mig í sopa;
í klukkubúðum kaupi ei
kardemommudropa.