piss...
er nú mannskapurinn að væta brók yfir einum vesælum sunnlenskum skelfingarhnerra? Smáræðis bossadilli í fjallkonunni.
Það sem þessa þjóð vanhagar um eru hressileg móðuharðindi. Það er alvöru stöff, eða svo var hún móðir mín blessunin vön að segja.
vomir hún á heljarþröm
hlut sinn býður falan
aldrei verður aftur söm
úrvalsvísitalan
Ég hefi komist að því að „rass“ er fyndnasta orð í íslenskri tungu. Þess vegna hefi ég lagt til við ríkisstjórnina að orðið verði friðað um alla eilífð svo það glatist ekki eða skipti um merkingu eins og hin geypifyndnu orð „sími“ og „skjár“ gerðu svo óeftirminnilega...